Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 37

Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 37
Þórður Jónsson: Hvað er öreind? INNGANGUR Eðlisfræðin er ung fræðigrein. Nær allar þær kenningar um eðli efnis- veruleikans, sem taldar eru áreiðan- legastar nú á dögum, spruttu upp á þessari öld. Rætur nútíma eðlisfræöi ná ekki lengra aftur en til ísaks Newt- ons, er lést árið 1727. En eðlisfræðin er líka gömul fræði- grein, kannski elst vísindagreina. Eins langt aftur og við höfum heimildir hafa menn velt fyrir sér, hvaða reglur stjórni veðri og vindum, gangi himin- tungla og öðrum efnislegum fyrirbær- um í umhverfinu. Reyndar hlýtur það að vera eitt lengsta skrefið á þróunar- braut mannsins að láta sér til hugar koma, að slík fyrirbæri stjórnist af al- gildum lögmálum, en ekki af tilviljun eða duttlungum ára og vætta. í þessum pistli ætla ég að reyna að veita lesendum ofurlitla innsýn í hug- myndaheim nútímaeðlisfræði. I grófum dráttum má segja, að vinna eðlisfræðinga sé þrískipt. Þeir gera til- raunir og mælingar, þeir reikna út ýmsar stærðir, sem bera má saman við tilraunaniðurstöður og síðast en ekki síst vefa þeir flókinn hugmyndavef, sem í einhverjum skilningi, svarar til efnisheimsins svokallaða. Vissulega eru þessir þrír þættir nátengdir. Hvert samband hugmyndavefsins og efnis- veruleikans er ætla ég ekki að reyna að fjalla um. Ég ætla heldur ekki að segja frá flóknum tilraunum eða strembnum stærðfræðireikningum. Mig langar hins vegar til að reyna að varpa ljósi á hluta hugmyndavefsins, sem ég var að minnast á. Það er sá hluti vefsins, sem snýst um öreindir, en svo nefnast smæstu einingar efnisins. Hér er nokk- uð erfitt unr vik, því að öreindahluti vefsins er ofinn úr sérsmíðuðum hug- myndurn, sem eiga sér enga hliðstæðu utan eðlisfræðinnar. Þessum hug- myndum verður ekki lýst til hlítar nema með stærðfræðilegu táknmáli. Ég mun því grípa til ýmissa líkinga til að skýra frá hugmyndum eðlisfræð- inga um öreindir. Allar þessar líkingar ná skammt og eru jafnvel í mótsögn hver við aðra. Mér er líkt farið og manni, sem ætlar að útskýra fyrir heyrnarlausu fólki symfóníur Beet- hovens. Nú er ég ekki að gefa í skyn, að lesendur skorti skilningarvit, held- ur hitt, að öreindum verður ekki lýst með orðum, er vísa beint til skynjana okkar. Öreindir hafa enga lögun, lykt eða bragð. Ekki gefa þær frá sér hljóð og öreindir eru ósýnilegar. Reyndar hafa þær ekki fastákveðna staðsetn- ingu nema í takmörkuðum skilningi eins og nánar verður vikið að hér á eftir. Öreind er hugtak, sem við notum til að skilja sum hinna flóknu fyrirbæra í efnisheiminum. Jafnframt vísar orðið öreind til einhvers konar efnisveru- leika. Þessu tvennu ætla ég að reyna að lýsa. Náttúrufræðingurinn 55(1), bls. 31—39, 1985 31

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.