Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 7
óverulegur hluti fæðunnar en er orðin
um helmingur fæðunnar við um 30-40
cm lengd. Hjá stærri þorski nálgast
hlutdeild fiskbráðar 100%.
Auk loðnu eru nytjafiskar eins og
kolmunni, karfi og þorskur mikil-
vægasta fiskbráð þorsks. Hlutdeild
þessara fiska í fæðunni er þó óveruleg
hjá þorski minni en 70 cm, en vex
nokkuð samfellt hjá stærri fiski. Af
annarri fiskbráð má nefna skrápflúru,
sandsíli (Ammodytidae), ýsu, ufsa,
steinbít, síld, mjóna og mjóra (Lyco-
des spp.). Pessar fisktegundir hafa þó
óverulegt vægi sem fæða þorsks, nema
helst skrápflúra.
Smæsti þorskurinn lifir einkum á
dýrasvifi, svo sem ljósátu, sviflægum
marflóm og krabbaflóm (Copepoda),
og er vægi þeirrar bráðar verulegt hjá
þorski allt að 25 cm að lengd. Hjá
þorski á lengdarbilinu 30-80 cm nem-
ur hlutdeild svifdýra 15—25%, en
minnkar síðan samfellt hjá stærsta
fiskinum.
Hlutdeild rækju, einkum stóra
kampalampa (Pandalus borealis Krpy-
er), í fæðu þorsks er allbreytileg eftir
lengd þorsksins. Á lengdarbilinu 20-
40 cm er hlutur rækjunnar á hinn bóg-
inn mestur eða 15—20%. í heild er
rækjan í hópi næstmikilvægustu fæðu-
tegunda þorsks ásamt kolmunna,
karfa og þorski.
Fjölmargar tegundir botnlægra
hryggleysingja eru allverulegur hluti af
fæðu smáþorsks á lengdarbilinu 10-30
cm. í þessum hópi eru burstaormar og
botnlægar marflær mest áberandi. Af
öðrum flokkum má nefna stórkrabba
(Decapoda) , skrápdýr (Echinoder-
mata), snigla (Gastropoda), samlokur
(Bivalvia) og humar (Nephrops nor-
vegicus (L.)).
Fæðunám eftir árstíma
Hlutfallsleg þyngd helstu fæðudýra
eftir árstíma er sýnd á 3. mynd. Víða
kemur fram leif tiltekins fæðuhóps,
t. d. sunddýr (leif). Með því er átt við
aðra bráð úr hópi sunddýra (fiska og
smokkfiska) en tilgreind er sérstaklega
á viðkomandi mynd.
Allmikill munur er á fæðunámi
þorsks eftir árstíma. Síðla vetrar, þ. e.
í mars, er loðna langmikilvægasta fæð-
an. Þetta á sérstaklega við í mars 1980,
en þá er loðna yfirgnæfandi sem fæða í
flestum lengdarflokkum þorsks. Ýmsir
flokkar hryggleysingja eru hins vegar
megin fæðan hjá minnsta þorskinum. í
mars 1981 er loðna aðalfæðan hjá 40—
90 cm þorski og mest áberandi hjá
50—60 cm þorski. Stærri þorskur étur
hins vegar aðra fiskbráð, svo sem
karfa og þorsk, í vaxandi mæli með
vaxandi lengd. Á þessum árstíma étur
smáþorskurinn aðallega ljósátu og
rækju og ýmsa botnlæga hrygg-
leysingja.
Að sumar- og haustlagi (þ. e. í júlí
1980 og september 1981) er samsetn-
ing fæðunnar nokkuð önnur. Hjá smá-
þorski og meðalstórum þorski allt að
70 cm að lengd er fæða einkum Ijós-
áta, rækja og burstaormar ásamt ýms-
um öðrum botnlægum hryggleysingj-
um. Hjá stærri þorski var kolmunni
aðalfæðan, einkum í júlí 1980.
í byrjun vetar, þ. e. í október-nóv-
ember, hefur samsetning fæðunnar
enn tekið nokkrum breytingum. í
október-nóvember 1980 er meginhluti
fæðunnar loðna, karfi (5—7 cm seiði)
og ýmis önnur sunddýr. í fæðu
minnsta þorsksins var rækja þó mest
áberandi auk ýmissa sviflægra og botn-
lægra hryggleysingja. í nóvember 1981
er karfi mikilvægasta bráðin hjá
stærsta þorskinum og er þar um mun
stærri karfa að ræða en ári fyrr (stærri
en 20 cm).
105