Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 47
skaðsemi húsamauranna, en hvim-
leiðir geta þeir verið þegar drottning-
arnar ungu skríða fram svo hundruð-
um eða þúsundum skiptir. Húsa-
maurarnir hafa eiturgadd eins og aðrar
búmaurategundir. Ekki er okknr
kunnugt um, að hann geti unnið á
mannshúðinni. Dæmi eru þó til þess,
að íbúar húsa þar sem maurar hafa
náð bólfestu hafi kvartað undan út-
brotum, hver svo sem orsökin hefur
verið. Það er heldur ekki útilokað, að
maurar þessir geti borið með sér
óþrifnað neðan úr skólpinu. Þar sem
flestir íslendinga gera einnig mjög
ákveðnar kröfur um, að íbúðarhús-
næði sé að mestu laust við skordýr, er
húsamaurinn á góðri leið með að
verða talsvert vandamál hér á landi.
Fæstir sætta sig við að hafa þessa
gesti til frambúðar inni á heimilum
sínum. Menn skulu þó hafa það í
huga, að tilvist þeirra bendir sterklega
til þess, að lagfæringa sé þörf á frá-
rennsli húsanna. Til þess að ráða nið-
urlögum mauranna þarf að uppræta
búin, en það er oftast örðugleikum
háð. Stundum virðist eitrun hafa dug-
að, hversu varanlegt sem það svo kann
að reynast. Það er vissulega einnig
reynandi að fylla með þéttiefnum allar
sprungur í gólfplötu eða rifur með nið-
urföllum og rörum, þannig að
maurarnir komist ekki inn í íbúðina.
Þetta leysir að vísu ekki stærsta
vandann, sem í mörgum tilvikum er
laskaða skólplögnin. Að sjálfsögðu er
mikilvægast, að hún verði lagfærð og
því síðan fylgt eftir með öflugri eitrun.
Það getur kostað verulegt rask bæði á
íbúð og högum fólks, en víst er að það
gengur ekki til frambúðar, að skola
öllu frárennsli niður undir gólfplöt-
una.
Eins og ástandið hlýtur að vera í
frárennslismálum í eldri íbúðahverfum
í Reykjavík má búast við því, að húsa-
maurinn skjóti upp kollinum æ víðar á
komandi árum.
ÞAKKIR
Helgi Hallgrímsson veitti okkur
góðfúslega upplýsingar um húsamaura
sem borist hafa Náttúrugripasafninu á
Akureyri. Skulu honum þakkir færð-
ar.
HEIMILDIR
Collingwood, C.A. 1979. The Formicidae
(Hymenoptera) of Fennoscandia and
Denmark. — Fauna Ent. scand. 8: 174
bls.
Forsslund, K.-H. 1957. Svenska myror.
15-19. - Ent. Tidskr. 78: 32-39.
Holgersen, H. 1943. Ponera punctatissima
Rog. (Hym. Form.) funnet i Norge. —
Norsk ent. Tidsskr. 6: 183-186.
Kryger, I.P. & O. Schmiedeknecht 1938.
Hymenoptera. — Zool. of the Faroes
43: 1-108.
Larsson, S.G. 1943. Myrer. — Danmarks
Fauna 49: 1-190.
Petersen, B. 1956. Hymenoptera. — Zool.
of Icel. 3 (49-50); 1-176.
Skptt, C. 1971. Nye danske fund af myren
Ponera punctatissima Roger (Hym.,
Formicidae). - Ent. Meddr. 39: 44-
47.
145