Náttúrufræðingurinn - 1959, Page 21
NÁTTÚRUFR Æ ÐIN G U R1N N
131
Nu birtist í sumar grein, sem virðist varpa nýju 1 jósi á aldur skelja-
laganna (°). Þar segir, að haíkóngur (Neptunea despecta) liai'i aðeins
lifað í Kyrrahafi fram undir lok plíósens, en sleppi þá gegnum ný-
myndað Beringssund inn í Norðuríshaf og norðanvert Atlantshaf,
og komi fram í Evrópu nærri upphafi pleistósens, nánar tiltekið í
þeim lögum, sem nú eru talin til alelzta pleistósens. Þessi tegund
birtist í efstu deild neðri Tjörnesseta (Cardium groenlandicum
deild) ásamt ýmsuin norrænum tegundum (7) og líkur benda þannig
til, að liér sé komið að upphafi framlengda ísaldatímans. Þessi lági
aldur setlaganna og hækkaður aldur dalanna virðist nú ekki sain-
rýmast því að setlögin séu eldri en dalirnir.
Hér verður að snúa hlutfallinu við. Meginþættirnir í sögu Tjör-
nessvæðisins gætu þá orðið þessir: Eldra dalaskeið hefst með risi
landsins vestan Bárðardals, en eystra lielzt láglendi. Þar varð þó
eitthvert jarðlagarask og eyðingin á eldra dalaskeiðinu þurrkar þar
út lnaunaflokka svo að mjög er nú erfitt að rekja þessi lög. Síðla
á eldra dalaskeiðinu hófst það sig á Tjörnesi, sem leiddi lil mynd-
unar hinna þykku eldri setlaga. Er lögin höfðu þakist hraunum
(„miðbasaltið") varð snörun. Nú mun komið að myndunarskeiði liins
almenna strandflatar og á því skeiði eru snöruðu lögin skorin og
sniðin ofan af breiðri spildu. Á eyðingarflötinn leggjast síðan
Breiðuvíkurlög, sem loks þekjast öfugt segulmögnuðum hraun-
unt og er þar líklega komið að upphafi klassiska ísaldatímans.
HEIMILDARRIT - REFERENCES
1. llelgi Pjeturss. Ora Islands Geologi. 1905.
2. Jakob Lindal. Drangey oghvernighún er lil orðin. Náttfr. 11, 1941, S. 41-4G.
3. Trausti Einarssón. Landslag á Skagafjallgarði, rayndun þess og aldur.
Náttfr. 28, 1958, S. 1—25.
4. A. Roche. C. J{. 256, 1953, S. 107.
5. Trausli Einarsson. A Survey of tlie Geology of the Area Tjörnes — Bárðar-
dalur. Rit Vís. ísl. XXXII. 1958.
G. D. M. Hopkins. Cenozoic History of the Bering Land Bridge. Science, 5.
júní 1959, S. 1519.
7. Guðmundur G. tíárðarson. A Stratigrapliic Survey of thc l’liocene Deposits
at Tjörnes, in Northern Iceland. Kbh. 1925.