Náttúrufræðingurinn - 1936, Qupperneq 24
132 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiui ii iii iii iii iiiiui 11111111 iii iii iiiiiii iii iiiuiii iii in in iii iiiiiiiiiiiiiiiiiim iii iiiiiiiiim iii iii ii ii iii ii iiiiii iii iii iiii
Guðnasonar símastjóra og annara, er hlut áttu að máli, var
fiskurinn sendur Náttúrugripasafninu, svo vel fleginn, að von er
til að hann geti orðið „settur upp“ og sýndur áður langt um líður.
Þegar fiskurinn kom, sýndi það sig fljótt, að það var hinn al-
gengi N.-Atlanzhafs-sverðfiskur, og þar með fengin full vissa fyr-
ir því, að hann hafi sýnt sig hér við land, og örugg undirstaða
undir ýmsum upplýsingum um hann.
Sverðfiskurinn (Xiphias gladius, L.) er mikill fiskur, einn af
stærstu beinfiskum heimsins, allt að .4 m á lengd (þessi var ca 2,8
m) og 150—200 kg, eða jafnvel 300 kg. í útliti og að stærð líkist
hann helzt túnfiski og hámeri, sporðurinn líkur þrínættum mána,
fremri bakuggi og eyruggar oddmjóir og bognir(líkt og bjúgsverð),
augun stór, munnurinn lítill og tannlaus. En það sem einkennir
hann allra mest er hin langa beintrjóna, sem er nál. 1/3 af lengd
fisksins og hann hefir fengið nafn sitt af.1) Hún er úr hörðu beini,
mjó og flöt, eins og tvíeggjað sverð, og er bæði högg- og lagvopn,
sem hann kann að beita svo vel, að hann er stór-hættulegur jafnvel
veikbyggðum bátum, eins og þeir eru oft í heitum höfum, rekur
ekki aðeins bátinn í gegn, heldur jafnvel mennina, sem á honum
eru. Hann rekur sig stundum á stór skip með svo miklu afli, að
sverðið gengur inn í gegnum látúnshúð og byrðing skipsins og
inn í innviði þess. Vill sverðið þá brotna, og situr þá það, sem
brotnaði af, eftir í „sárinu“. Liturinn er dökkblár eða bronzi-brúnn
að ofan, silfurgrár að neðan; hreistur er ekkert, en roðið er
hrufótt af smáum kalkörðum. •— Tennur eru engar í fullorðnum
fiskum, en í uppvextinum er hann tenntur og með kviðugga, sem
hverfa síðar. Þá eru líka báðir skoltar jafnlangir, en seinna vex
sverðið, án þess að neðri skolturinn lengist nokkuð verulega.2)
1) Nafnið „sverðfiskur" þekkist líka hér á landi, sem eitt af nöfnunum
á háhyrnunni, en þar er það dregið af horninu.
2) í heitum höfum er skyldur fiskur, sem nefnist Histiophorus.