Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 6

Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 6
52 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN valnsgufan eða skýin burtu, oft langar leiðir. Eflir því seni nær dregur heimskautum, verður uppgufun minni, cn iirkoman minnlc- ar ekki að sama skapi. En ef jörðin er tekin sem ein heild, þá stenzt uppgufun og úrkoma (þar með talin dögg og héla) á, þegar lil lengdar lælur. Rakastig. Rakastig er það kallað, iive marga liundraðshluta af vatnsgufu loftið inniheldur, miðað við það gufumagn, sem þarf til þess að gera það mettað. Ef t. d. 2.4 gr. af vatnsgufu eru í hverj- um rúnnnetra lofts við 0°C, þá er rakastigið 50, shr. töfluna. Það fer því ekki einasta eftir hitastiginu, liversu góður þurrkur er, heldur og eftir rakastiginu. Ennfremur hefir veðurhæðin mikla þýðingu í þessu efni, því að í logni liggur loftið að miklu leyti kyrrt á sama stað og mettast fljótt, en í vindi endurnýjast það sí- fellt og nær ekki að mettast. Uppgufun er, að öðru jöfnu, þeim mun örari, sem rakastigið er lægra eða loftið „þurrara“. Þegar loftið er mettað — rakastigið 100 —, getur engin uppgufun átt sér stað, liversu liár sem loflhil- inn er. En þar fyrir getur svo farið, að loftið verði yfirmettað, en svo er það nefnt, þegar meiri vatnsgufa er í loftinu, en taflan sýnir. Loftið verður sjaldan mettað, og því síður nokkru sinni yfir- metlað, vegna uppgufunar einungis, heldur vegna breytinga á loft- iiita. Á töflunni má einmitt sjá, hvernig rakastigið breytist, ef lofthiti hækkar eða lækkar. Ef rakinn er l. d. 50 við 10 stiga liita en loftið kólnar svo niður í 0 stig, þá er rakinn orðið 100 eða loft- ið mettað. Ef loftið kólnar meira, án þess að nokkuð af vatnsguf- unni þéttist, verður það yfirmettað, og er það algengt í efri loft- lögum. Þétting vatnsgufunnar. Hitastig það, sem loftið þarf að ná til þess að vera mettað, er kallað daggarmark. Nafnið er dregið af þvi, að ef loftið kólnar niður fyrir þetla mark, t. d. á heiðskírum sumarnóttum, myndast dögg — eða héla, ef daggarmarkið er fyr- ir neðan frostmark. Hugsum oss t. d., að lofthitinn sé 10 stig og loftið mettað. Svo kólnar það niður í 0 stig. Þá sýnir taflan, að ef það á að haldast mettað, verða 9.4—4.8 — 4.6 gr af vatnsgufu að þéttast í hverjum rúmmetra lofts. Yið yfirhorð jarðar myndast á þennan liátl dögg eða héla. En þegar þetta gerist hærra i lofti, verða til ský. Eins og drepið var á hér að framan, getur loftið kólnað niður fyrir daggarmark, án ])ess að noklcuð af vatnsgufu þéttist: loftið verður yfirmettað. Þetla stafar af þvi, að vatnsgufan verður að hafa eitthvað til þess að þéttast um, annaðhvort fasta hluti á

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.