Náttúrufræðingurinn - 1943, Blaðsíða 12
58
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
samsett af undirkældum vatnsdropum. Undirkæld ský liggja
stundum mjög nálægt jörðu, eins og sjá má á því, að stundum
er úðarigning í frosti. Þegar þessir undirkældu dropar falla á
fasta hluti, t. d. símastaura eða þræði, flugvélar o. s. frv., breyt-
ast þeir samstundis i ís, og er það nefnt ísing. En eins og kunn-
ugt er, stafar flugvélum einmitt mikil hætta af henni.
Snjór og hagl. Þótt stundum rigni undirkældum dropum, er
hitt þó algengara, að úrkoman taki á sig aðrar myndir í frosti.
Tiðust þeiri-a er snjórinn. Snjókornin eru mjög margbreytileg
að gerð, en öll eru þau samsett af örsmáum ískrystöllum, sem
skipa sér í sexstrendar sljörnur, á mjög listrænan hátt. Ilviti
liturinn stafar af því, að loft er á milli ískrystallanna (smbr.
sjávarlöður), eins og m. a. má sjá af því, að þegar snjó er þjapp-
að nógu mikið saman, verður hann að glærum ís. Vegna loftsins
eru snjókornin miklu léttari en regndropar og falla því hægt
til jarðar. Slydda eða bleytuhríð er ekki annað en hálfbráðnuð
snjókorn, og stundum er úrkoman þannig, að samtímis falla til
jarðar snjókorn og regndropar.
Þá er eftir að minnast á liaglið. Talið er, að það verði til, þegar
kæling loftsins og þétting vatnsgufunnar er óvenjulega ör. Til
eru þrjár gerðir af hagli, og eru varla nema tvær þeirra þekktar
hér á landi: 1) Snjóhagl kemur, þegar hiti er nálægt frost-
marki, þ. e. a. s. sjaldan eða aldrei að sumrinu. Snjóhaglkornin
eru nærri hnöttótt snjókorn, livit, þurr og mjúk og jafnvel laus
í sér, svo að þau vilja sundrast, ef þau lenda á hörðu. Þau geta
orðið á stærð við matbaun. 2) Hagl kcmur, þegar hiti er nokk-
uð yfir frostmarki, oft i sumarhilum. Haglkornin eru þakin
íshúð að ulan, en innan undir henni er korn af sömu gerð og
snjóhaglið. 3) Loks er svonefnt íshagl eða þrumuhagl, sem
oft er samfara þrumuveðrum erlendis. Þessi haglkorn eru stund-
um alveg glær, en stundum eru þau mynduð af glærum islögum
og ógagnsæum snjólögum á víxl hverju utau yfir öðru. Þau eru
stundum hnöttótt en stundum eins og óreglulega lagaðir ís-
klumpar. Stærð þeirra er ákaflega mismunandi, og þau geta
orðið ótrúlega stór. Stundum heyrist talað um haglél, þar sem
kornin eru á stærð við hænuegg. Og dæmi eru þess, að fallið
hafa í hagléli mörg haglkorn um og yfir 1 kg að þyngd og allt
að 3 pundum, enda voru þau um 15 cm í þvermál. Slík haglél,
og þótt ekki séu svona tröllsleg, eru auðvitað stórhættuleg mönn-
um og skepnum og jafnvel mannvirkjum, og það er hreint ekki
sjaldgæft, að þau eyðileggi á fáeinum minútum heila akra. Þeim