Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1943, Qupperneq 17

Náttúrufræðingurinn - 1943, Qupperneq 17
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 63 iðulega svonefndar liitaskúrir og hitaþrumuveður á lieitum sum- ardögum í tempruðu beltunum, meira að segja hér norður á fs- landi er slíkt ekkert einsdæmi. Rétt er að benda á það, að svona skýja- og skúramyndanir verða ekki yfir sjó, vegna þess að sjór og vatn hitnar mjög litið að deginum, þrált fyrir sterkt sólskin. En fjöll stuðla hinsvegar mjög að myndun skúraskýja, því að þau örfa uppstreymið og knýja loftið jafnvel til að leita upp á við. Það er iíka gamalkunnug staðreynd, að fjöllin „draga að sér skúrirnar'. En flest skúraský og þrumuveður liér og annarsstaðar í kald- lempruðu beltunum eiga sér aðra sögu. Yfir heimskautasvæðun- um hvílir að jafnaði kalt loft, sem er í jafnvægi, svo sem fyrr er sagt, enda fylgir því allajafna þurrt veður og bjart loft. En þetta loft tekur þátt í hinni stöðugu hringrás loftsins heimskautanna á milli, og leitar því von bráðar í áttina til miðjarðarlinu. En á leið sinni þangað hitnar það æ meir og meir að neðan, ]jví að Iandið eða höfin, sem það fer vfir, verða alltaf hlýrri og hlýrri. Af þessu stafar röskun á jafnvægi, eins og lýst var áðan, upp- streymi hér og þar og þarafleiðandi skýjamyndanir, bólstrar eða skúraflókar. Skúrir þau og él, sem fylgja útsynnings- veðráttu hér á landi, eru einatt af þessum toga spunnin. Þar er á ferð heimskautaloft, enda þótt það komi úr suðvestri. En það er raunverulega lcomið norðan að, hefir átt þátt i myndun lægðar og orðið hluti af henni, streymir fyrst suður eftir vestan við liana, en beygir síðan til austurs og norðausturs og eltir hana á leið sinni austur á bóginn, og gerir vart við sig hér, þegar sjálf lægðarmiðjan er að fara yfir eða framhjá. Og með því að kalda lofið á „bak við“ lægðina nær yfir stórt svæði, getur skúraveðrið haldizt klukkustundum eða dægrum saman, en að vísu með löng- um uppstyttum og heiðríkjubilum, sem gefa til kynna, að á milli skýjanna eigi sér ekkert uppstreymi stað og jafnvel að loftið leiti þar niður. b. Hið jafna uppstreymi á sér alll aðrar rætur. Það stafar ekki af röskun jafnvægis, heldur af mótstöðu, sem loftstraumurinn verður fj'rir og neyðir hann til að leita til lofts. T. d. geta fjall- garðar eða hálendi veilt slíka mótstöðu, en mótslaða sú, sem er völd að myndun bliku og grábliku, er önnur. Allir vita, að tveir misþungir vökvar eða tvær misþungar loft- tegundir eru í jafnvægi, þegar þyngra efnið er undir en það létt- ara yfir, svo framarlega að þau blandist ekki saman. Markaflöt- urinn á milli þeirra er þá láréttur, en þó því aðeins, að engir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.