Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 19

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 65 eða 10 cm uppávið. Uppstreymið er m. ö. o. 10 cm á sek, 360 m lá klukkustund eða 3.6 km á 10 klst., eins og fyrr var bent á. En útreikningar og reynsla sýnir, að þetta uppstreymi er nægi- legt til að framleiða mikla og varanlega úrkomu. í bólstrum og skúraskýjum er uppstreymið miklu örara, og getur jafnvel numið nokkrum metrum á sek., enda er úrfelli í skúrum mikl- um mun ákafara en i venjulegri rigningu, og liagl myndast, þegar uppstreymið í skúraskýjum er venju fremur ört. Lægðir og ský. Nú er auðvelt að gera sér grein fyrir sam- handinu milli skýja og lægða. Heita loftið streymir látlaust upp eftir brekku kalda loftsins og getur þannig náð 8—10 km hæð frá jörðu. En þá er það komð í 800—1000 lcm fjar- lægð frá lægðarmiðjunni, sem er einmitt í geilinni eða tung- unni, sem fyrr er getið. Svona liátt uppi er lieita loftið mjög þunnt, og ský þau, sem þar myndast, eru því þunn og gisin og auðvitað samsett af eintómum ískrystöllum. Fremstu skýin og þau efstu eru fjaðurskýin eða ldósigarnir. Á eftir þeim kemur svo hlikan, þar sem lieita loftið er orðið nokkru þyklcra og jafn- ara. Eftir því sem það þykknar, þykkna og blikuskýin og verða smjámsaman að gráhliku. Iiún er fvrst svo þunn, að sól eða tungl sjást í gegn, án þess að nokkrir skuggar komi fram, en síðan þykknar hún einnig, og líður þá ekki á löngu, að taki að rigna eða snjóa. Þannig stendur þá á því, að klósigar og hlikur ásamt rosa- haugum eru fyrirhoði storma og úrkomu. Að visu getur þetta hrugðizt, því að öll þessi merki sjást einnig á norðurlilið lægðar- innar í útjaðri hennar, en þá fer hún framlijá i svo mikilli fjar- lægð, að ekkert verður lir illviðrinu. Ennfremur má gera sér nokkra grein fyrir því, hversu lengi óveðursins muni vera að bíða, eftir að fyrstu merki liennar, klósígarnir, koma í ljós. Ef gert er ráð fyrir, að þeir séu í 10 km hæð, en það er með því hæsta, sem orðið getui-, og að lægðin fari 50 lan/klst., þá er hún komin eftir 20 klst., því að frá ldósigunum iil lægðarmiðjunnar eru 1000 km í þessu tilfelli. En auðvitað hefir livesst og byrjað að rigna nokkrum tímum áður. Ilugsanlegl er, að fjaðurskýin séu ekki nema i 7 km liæð, eða 700 km frá lægðarmiðjunni, og að hún fari 70 km/klst. — en það er helzt að vetrinum, að lægðirnar fara svo hratt, þær fara yfirleitt miklu hægar sumar en vetur •—. Þá er lægðarmiðjan aðeins 10 klst. á eflir fyrstu klósigunum. Undir öllum kringumstæðum er fyrirvarinn æði stuttur, aðeins fá- einar klst., þannig að veðurspár, sem hyggjast á þessum merkjum 5

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.