Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 29

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 29
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 75 ingu é ástandinu, að ef ekki væri hungursneyð í sjö ár af hverj- um tiu, þá væri ekki hægt að fá menn til að safna kátsjúldnu. Með öðrum orðum, hara ]>eir, sem sáu dauða sinn fyrir í heimkýnnum sínum, voru fáanlegir til að hætta á ferðina inn í frumskóginn til að safna kátsjúki. En kátsjúk fæst úr fleiri plöntum en parakátsjúktrénu. Fyrir aldamótin siðustu var unnið mikið af góðu kátsjúki úr viðar- kenndum klifurjurtum, aðallega Kiehxia elastica. Þessar klifur- jurtir vaxa villtar í Vestur-Afríku, aðallega í belgísku Kongó. Það var verk þeirra negra, sem ekki höfðu verið seldir úr landi til Bandaríkjanna í þrældóm, að safna kátsjúkinu. Ef negrarnir lcomu ekki með nóg af kátsjúki, voru þeir húðsbýktir. Þeir hættu því fljótt að skera í jurtirnar, til þess að tappa mjólkinni af þeim, heldur hjuggu þeir stofninn í sundur, svo þeir gætu safnað sem mestu af kátsjúki á sem styztum tima. Þessar klifurjurtir voru því næstum gjörsamlega upprættar á mjög stuttum tíma. En náttúran er gjöful. I Afríku og viðar vex fjöldi af plöntum, sem hægt er að nota til framleiðslu á kátsjúki. í Asíu var ræktað risa-fíkjutré eða gúmmítré, Ficus elastica, fyrir aldamótin síðustu, og af því fengið töluvert af kátsjúki. Og kunnugt er um einar 500 plöntutegundir, sem mynda meira cða minna nothæfan kátsjúk- mjólkursafa. En flestar eða jafnvel allar þessar plöntutegundir eru þýðingarlitlar eða þýðingarlausar fyrir kátsjúkframleiðslu heimsins að undantekinni einni, eða þeirri tegundinni, sem fyrst gerði kátsjúkið frægt og upprunnin er i Brazilíu. Hún vex þó ekki lengur i braziliskri mold, lieldur hinum megin hnaltarins, á Ausfur-Indíum, og ekki villt i frumskógum, heldur á vandlega hirtum ekrnm. Á síðari helmingi síðustu aldar var notkun kátsjúksins þegar farin að aukast til verulegra muna. En sérhver, sem fylgdist með því, hvernig kátsjú'kið var unnið, hlaut að sjá, að trjánum, sem létu mjólkursafann í lé, fækkaði stöðugt. Það voru því víða gerðar lilraunir lil að rækta tré eða aðrar plöntutegundir, sem liægt væri að nota til framleiðslu á kátsjúki. Þessar tilraunir misheppnuðust þó allar að meira eða minna leyti, nema ein, og frá henni vildi ég segja. Árið 1871 birti ungur enskur plöntufræðingur, Henry Wick- ham, rilgjörð um ferðalag um frumskóga Braziliu, sem hann hafði tekizt á hendur. Þessi ritgjörð mun hafa verið lesin í liinni frægu India Office í London, þvi að tilhlutun þessarar stofnunar réð forstöðumaður trjágarðsins í Iíew hjá London Wickham til

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.