Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 35

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 35
í f NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN 81 eða þrýst er ofan í það, þ. e. a. s. liefir mikið tog-elastísítet og þrýsti-elastísítet, og nær þó aftur uppliaflegri lögun; lengdin á þræði úr gúmmii getur sexfaldazt, eða jafnvel meira, ef togað er i hann; þegar átakinu er sleppt, stytlist liann strax aftur og er nú ekki lengri en hann áður var. Togþol þessa gúmmis er sömu- íeiðis mjög mikið, þ. e. átakið, sem þarf til að slita þráð með ákveðnum gildleika. Þráður, sem er 1 cm- að gildleika, slitnar t. d. ekki fyrr en húið er að liengja neðan í liann 250 kg eða meira. Gúmmí, sem einungis er búið til úr lcátsjúki og brennisteini, er venjulega gulleitt á litinn og hálf-gagnsætt. Kátsjúk — brennisteinsdeigið er oft hlandað ýmsum efnum, og eru þessi algengust: Sem mýkiefni paraffín eða olíur; sem fylli- efni krít eða talkúm; sem þyngiefni þungspat; sem litarefni gull- brennisteinn, þ. e. antímónpentasúlfíd, eða sót eða annað kolefni; af gullbrennisteininum litast gúmmiið rautt, en af sótinu svart. Kátsjúk má einnig vúlkanísera án upphitunar, og er þá kát- sjúkdeiginu difið ofan i upplausn af klórbrennisteini (2—5%), eða gufa af klórhrennisteini er látin verka á kátsjúkið. Eins og áður er tekið fram, fær kátsjúkið til verulegra muna aukinn teygjanleika með vúlkaníseringunni; liitt er þó jafnvel meira virði, að þessi teygjanleiki helzt nú, þótt hitinn breytist töluvert. Þannig lieldur vúlkaníserað kátsjúlc eða gúmmí teygjan- leika sínum og mýkl sinni næstum óskertri, þótt það sé kælt niður fyrir frostmark eða liilað upp í 100° C eða jafnvel meira. Menn athugi, hversu mikils virði þetla er t. d. fyrir hilahjólharða, sem oft eru kaldir, en liitna yfirleill mikið, þegar bilnum er ekið. Ennfremur er gúmmíið algjörlega eða næstum algjörlega óupp- leysanlegt i olíum, það þolir nú miklu betur áhrif ljóssins en áður, er ekki eins næmt fyrir áhrifum súrefnis loftsins og ýmissa ann- arra efna o. s. frv. Með vúlkaníseringunni er kátsjúkið orðið Jiijiig hentugt efni og endingargott, enda eru liinir margvisleg- ustu munir gerðir úr því. Mest er það þó nolað til framleiðslu á hjólbörðum og slöngum fyrir bíla og reiðhjól. En það er einnig mikið nolað i vatnsheld stígvél og annan skófalnað, ýmist í alla skóna eða aðeins í sólana, til að gera vefnað vatnsheldan, og er vefnaðurinn síðan m. a. notaður i gúmmíkápur og ýmsan annan fatnað. Ennfremur er kátsjúk notað til einangrunar fyrir raf- magn, i kemískum iðnaði lil margra liluta, i gólfdúka, til götu- lagningar, og er þetta ekki nema fátt eilt af þvi, sem kátsjúlc er notað til, en að vísu það þýðingarmesta. 6

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.