Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 37

Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 83 kátsjúki; þörfin fyrir það hafði vaxið óðfluga, en framleiðsla þess ekki að sama skapi. Eftirspurnin var orðin svo mikil, að livert kílógramm kostaði 30 lcrónur. Það er því ekki að undra, þótt ýmsir hafi reynt á þeim árum að húa kátsjúkið til úr einföldum og ódýrum kemískum efnum, og það þvi fremur, að einmitt um þetta leyti iieppnaðist efnafræðingum að finna aðferðir til framleiðslu á þess konar hráefnum, sem áður voru einungis fengin úr náttúrunni, og voru þessi tilbúnu efni stundum ódýrari en þau náltúrlegu, og stundum jafnvel einnig betri. Það urðu þvi ýmsir til þess að reyna framleiðslu á lcátsjúlci að kemískum leiðum, en aðeins einum þessara manna heppnað- ist að renna skeiðið á enda, heppnaðist að framleiða efni, sem liafði sömu eiginleika og náttúrlegt kátsjúkið og alla kosti þess, og kostina jafnvel i ríkari mæli en náttúrlega efnið. Eins og tekið var fram hér að framan, er maður þessi Þjóðverjinn Fritz Hof- mann. Hofmann hyrjaði tilraunir sínar árið 1905 og vann hjá Elber- felder Farbenfabriken von Bayer & Co., en þessar verksmiðjur teijast nú til I. G. Farbeninduslrie. Fyrsti spretturinn var tiltölu- lega auðveldur, og var lionum að mestu lokið í september 1909, en þá heppnaðist Hofmann fyrstum manna að framleiða efni, sem hafði ýmsa sömu eiginleika og náttúrlegt kátsjúk. Árið 1912 var rannsóknum á þessu efni svo langt komið, að þá voru almenn- ingi sýndir lijólbarðar, sern höfðu verið notaðir til aksturs allt að þvi 100.000 km vegalengd, og höfðu hjólbarðarnir reynzt sæmi- lega, þeir voru a. m. k. nothæfir. Ári síðar, eða 1913, var þetta efni haft á boðstólum til sölu, og í hinni fyrri heimsstyrjöld not- uðu Þjóðverjar þessa kátsjúkeftirlíkingu mikið til sinna þarfa, þvi ekki var þá, frekar en nú, hægt fyrir þá að flytja náttúrlegt kát- sjúk til sin. En í millitíðinni liefir margt breytzt, og nú eru það Rússar, sem nota þessa kátsjúkeftirlíkingu til að fylla í skörðin, þegar aðflutt og heima-uimið náttúrlegt kátsjúk er eklci nóg lil allra þarfa. Þessi fyrsta kátsjúkeftirlíking, sem kom á markaðinn og fram- leidd var að fyrirsögn Hofmanns, var húin til úr bútadíeni og alakalímálmi, venjulega natrium, og var eftirlíking þessi nefnd eftir fyrstu stöfunum í nafni þcssara efna, hú og na, og kölluð búna. Af þessum tveim efnum, sem notuð voru í kátsjúkeftirlík- inguna, er natríum svo alþekkt og auðfengið, að óþarft er að geta þess frekar hér. Bútadíen aftur á móti er ekki eins algengt efni; ])að er lofttegund, og eru hráefnin, sem notuð eru til framleiðslu 6*

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.