Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1943, Side 40

Náttúrufræðingurinn - 1943, Side 40
86 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN starfið á þessu sviði, voru upphaflega alls ókunnugir náttúrukát- sjúki og teknískri vinnslu þess; við vorum eins og riddarinn, sem reið yfir Bodenvatn og hafði ekki hugmynd uni djúpin fyrir neð- an sig. Við létum hrífast af hinni kemisku uppgáfu, og unnum að hugmjmdinni að syntetísera hráefni, sem stöðugt varð mikilsverð- ara, en var ekki hægt að framleiða á okkar breiddarstigi. Sérhver reyndur kátsjúksérfræðingur vísaði áformi okkar frá sér sem aægradvöl draumóramanna, sem ekki hefðu hugmynd um, hvað þeir liefðu tekizt á hendur. Hann þekkti allar þær þúsundir af kröfum, sem til kátsjúksins voru gerðar, til þessarar undrasmíði skaparans, efnisins, sem er ímynd teygjanleikans og stálseiglunn- ar, kraftsins og mótstöðuaflsins gegn hinum margvislegustu efn- rænu og aflrænu áhrifum. Fyrir sérfræðingana var þetta heitt járn, sem þeir vildu ekki hrenna sig á, það máttu skáld efna- fræðinnar gjarna gera, efnafræðingarnir með sitt formúlurusl."1) flofmann tók að sér að verða „skáld efnafræðinnar“, og hon- um tókst að fullgera listaverk, sem mun verða lionum og liinum mörgu samverkamönnum hans óhrotgjarn minnisvarði. V. Að lokum verður að geta að nokkru þeirra efna, sem notuð eru meira eða minna í staðinn fyrir kátsjúk, þ. e. a. s. kátsjúkeftir- hkinga eða gervigúmmís. Hér á undan var minnzt á eina slika eftirlíkingu, sem notuð var fyrir striðið og notuð nmn enn í Rússlandi, en sú eftirhking er gerð úr bútadíeni. I Bandaríkjum Norður-Ameríku, og að nokkru leyti einnig i Bretlandi, er framleidd kátsjúkeftirlíking, sem kölluð er neóprene. í Bandarikjunum er það aðallega Du-Pont-félagið, sem framleiðir þessa eftirlíkingu. Hún er búin til úr klórbútadíeni, efni skyldu bútadíeni, og mun vera eitthvað skárri en rússneska eftirlíkingin. Cr neoprene er ekki hægt að búa til efni svipað harðgúmmíi eða ebóniti, og ekki er hægt að vúlkanísera það með brennisteini, og sést m. a. á þessu, að hér er eklci um tilbúið kátsjúk að ræða. En i Bandarikjunum og Englandi mun ekki vera völ á betri eftirlík- ingu af kátsjúki, og alls ekki á tilbúnu kátsjúki. Þá eru framleidd á ýmsum stöðum efni, sem likjast að ýmsu kátsjúki, og eru lcölluð perdúren og thíókol. Þessi efni eru búin til úr halógeneruðum kolvetnum með natríumpólysúlfídum. Þau I) Die Umschau, 40. árg. (1936), bls. 201.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.