Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 44

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 44
90 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Flest grösin nefna þeir norrænum og íslenzkum nöfnum, en láta liverju slíku nafni fylgja hiö latneska tvínefni dr. Linnés, er hann var frumkvöðull að. Vitnar Eggert í því efni til „Flóru Sviþjóð- ar“ eftir Linné. — Auk alls annars samdi Eggert stóra maturtabók til þess að leggja með henni grundvöll að íslenzkri garðyrkju. Það var bók um „garðyrkju á íslandi, frá þvi er sæðið fer fyrst i moldina og til þess er ávöxturinn verður á borð horinn“. En hún fórst, því miður, með honum, eins og jurtaskná hans og önnur rit, er hann drukknaði á Breiðafirði vorið 1768. Maturtabók hans er þó til í stuttu ágripi, sem mágur Eggerts, Björn próf. gaf út í Kaupmh. 1774. Eins og við er að búast af þessum þjóðræknu mönnum, þá vildu þeir láta allt íslenzkt sitja í fyrirrúmi. Svo var því farið með íslenzku jurtanöfnin. Það var sérstaklega áríðandi, að nöfn nytja- jurtanna væru íslenzk; lýsingin á notkun jjeirra gat því aðeins komið að nokkru haldi, að liún festist við nöfn, sem íslenzkri al- þýðu væri kunn, eða gætu orðið henni töm, ef ný væru. Það lætur að líkindum, að þeir félagar, Eggert og Bjarni, hafi grafið upp flest þau nöfn, sem fyrir voru lijá alþýðu manna, og því aðeins bætt við nýjum nöfnum í þýðingum eða myndað önn- ur eftir útlendum jurtanöfnum, að engin íslenzk nöfn væri fyrir. Það voru jurtanöfn Norðmanna, Dana og Þjóðverja, ef þeir munu helzt hafa haft fyrir sér um myndun nýrra nafna. Þetta má ráða af því, sem Björn próf. Halldórsson segir i „Gras- nytjum“ um jurtina, sem Linné kallar: Veronica officinalis, Cen hún er nú nefnd hárdepla á íslenzku). Þessi jurl hefir ekkert islenzkt nafn, nema menn vilji nefna það eflir dönskunni, og kalla Æruprís (Ærenpriis), eins og dansk- ir hafa fengið henni nafn frá þýzkunni (Ehrenpreis).“ — Það er eins og höfundinum þyki slík nafngift óþjóðleg eða óyndisúrræði. En jurtina þá þurfti alþýða manna að þekkja með nýju nafni, því að dyggðir hennar voru svo margar. Á ferðum sínum hafa þeir Eggert að sjálfsögðu eigi látið undir höfuð leggjast að kynna alþýðu notagildi jurta. En lýsingar þeirra og nafngiftir, hafa vitanlega oft gléymzt eða afbakazt, og dyggð- irnar stundum verið eignaðar öðrum jurtum en liinum réttu, líkt og þegar gamla konan sagði, að „helluhnoðrinn væri alltaf hið blessaðasta gras að drekka af“. („Grasaferð" Jónasar Hallgríms- sonar). Og að því er ræktun matjurta snertir þá er mælt, að flestum

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.