Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 45

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 91 bændum hafi boðið við að leggja þær sér til munns. „Þetta gras upp úr moldinni“, eins og þeir orðuðu það. Má því álykta að notk- un villijurta hafi eigi verið þeim öllu geðfeldari. Eins og geta má nærri, þá fellur þeim félögum þetta næsta þungt, þar sem þeir vissu hvílík hagsbót öðrum þjóðum hafði orð- ið að grasnytjunum fyr og síðar. Um ekkert gátu þeir sannfærðari verið en „dyggðir“ jurtanna, eins og dr. Linné og aðrir lærðir menn höfðu lýst þeim. Dr. Linné var sjálfur læx-ður graslyfja- læknir, eins og flestir læknar í þá daga. Eggert segir á einum stað í „Búnaðarbálki“ sínum, að landar sinir skelli skollaeyrum við þessum grasnytjakenningum viti-ari þjóða, eins og „hvert flónið af þeim sé áminnstum þjóðum viti-ara“, og tekur til dæmis: epli, næpur og fleiri matjurtir. Bjarni, lagsbróðir Eggerts, liafði mestar mætur á grasafræð- inni eins og áður er sagt. Þess vegna óskar Eggert þess í brúð- kaupskvæði sínu til Bjarna, að „dyggðir grasanna“ mættu hrína á þeim hjónurn t. d. „Maðran, i landsins vinnu væn verlci það, að þau lýist ekki“. Þeir höfðu nefnt möðruna: ólúagras, sakir verk- ana hennar, en aldrei úti'ýmdi það nafn liinu upphaflega nafni hennar, enda mun revnslan eigi hafa staðfezt það. Og hið sama mun rnega segja um svo margar aðrar „dyggðir grasanna", sem þeim voru eignaðar, bæði af dr. Linné og öðrum hálærðum mönnum. En það var nú einu sinni orðin bjargföst sannfæring allra þessara „Vormanna íslands", að „grasnytjarnar" væru eitt hið nærtækasta bjargarráð handa bjargarvana og læknislausri þjóð, eins og íslendingar voru þá. Þeim þótti spaklega mælt, það sem Gunnar skólameistari kvað, bróðir Bjarna Pálssonar: „Hvert land hjálpast við sín gæði, ef lialdið er rétt þar á“. Hann var einn í tölu „Vormannanna“. En Eggert drukknaði í blóma aldurs síns, og Bjarni sleit sér út á lækningaferðum sínum, því að allt landið var þá læknis- dæmið hans að heita mátti. Hann dó 1779 og hafði þá gengt land- læknisdæminu í 19 ár. En Björn prófastur Halldórsson lifði þá báða (d. 1794). Hann

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.