Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 57

Náttúrufræðingurinn - 1943, Síða 57
XÁT'rÚRtÍFR /Ivbl NG UHFNN ioá 2. mynd. Þverskurður af Hrafnagilshólnum frá suðri til norður: a hall- andi sandlög, b lárétt sandlög, c jökulurð, d móhella, e lárétt sandlög, f vatnsnin möl, g-g jafnsléttan við hólræturnar beinin. þessir úr aftanverðum hrygg, en þó mun öftustu liðina hafa vantað. Má af þessu ráða, að hvalurinn liefir ekki verið stór vexti. Beinin voru svo meyr að næstum ókleifl var að ná liðunum ó- sködduðum, og þeir, sem náðust féllu í mylsnu eftir skamma hríð, er loftið náði að leika um þá. Þar sem greftri var haldið áfram gerði ég ráðstafanir til þess, að mér yrði gert aðvart, ef meira fyndist af beinum, einlcum ef hausbein kæmu í ljós, en svo reyndist þó ekki, þrátt fyrir það, þó mikið hafi verið grafið af hólnum síðan. Verkamenn, sem unnu við malartekjuna tjáðu mér, að fyr um sumarið hefði fundizt þar brot úr beini, sem þeir bugðu vera rif, og eins taldi einn maður, sem þar liafði unn- ið nokkurnveginn víst, að skeljabrot hefði fundizt í sandinum, en ekkert þeirra gat ég séð að þessu sinni. Það hefir lengi verið ljóst, að Eyjafjörðurinn hefir fyrrum gengið miklu lengra inn en nú, enda hallar dalbotninum nær (kkert lengi vel. Þannig eru bólræturnar við Hrafnagil aðeins um 10 m yfir sjávarmál og liggur hóllinn þá um 11 km frá fjarð- arbotninum. Líklegt má telja, að hvalbein þessi séu frá lokum jökultímans. Þá hefir djúpur fjörður verið þar, sem nú eru hinar frjósömu engjar um neðanverðan Eyjafjörð. Sennilega hefir jökull enn verið hið efra, og niður frá honum hafa fallið lækir og ár niður í fjörðinn. Ein slík á hefir fallið, þar sem Reykáin rennur enn í dag, og hefir jökulurðin, sem hvalbeinin hvila á verið framburður hennar, eða skriðjökuls, sem hún hefir fallið undan, og líklega skagað dálítið fram í fjörðinn. Síðan liefir framburður árinnar, eftir að hún var orðin bergvatnsá hlaðið hólinn smám saman upp, og er landið reis úr sæ kom hann fram sem hóll en var áð- ur aðeins lág óseyri við ströndina.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.