Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 25

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 127 sinur þar vestra, því að kaldur straumur liggur fram með strönd- inni. A sama breiddarstigi rækta Japanar hrisgrjón með góðum órangii. Hlýr liafstraumur gerir gæfumuninn. Hafstraumar, land- grimn og strandlengja ráða mestu um fiskgöngur og siglingar og eiga þannig ]iátt i örlögum þjóðanna. Allt hefir áhrif i liag- fræðilegum efnum, jafnvel sólin og tunglið. Áhrif sólar á lif og gróður þekkja allir. En hvernig er það með lilessað tunglið, er það atvinnurekandi? Tunglið veldur sjávarföllum — flóði og fjöru. Æði margir mikilvægir árósar eru aðeins skipgengir með fióði. Þær þjóðbrautir eru háðar tunglinu. Ef til vill verða sjávar- föllin eintiverntíma aflgjafi, sem um munar, þegar mannsandan- um tekst að heizla þau að gagni. -— Hlulirnir, sem við notum, maturinn sem við etum — allt er þelta undursamlegt og á sína sögu. Vörurnar vefa sterka þræði milli þjóða og landa, — milli fortíðar og nútíðar. Þegar við klæðum okkur á morgnana, þvo- um okkur, borðum morgunverðinn, drekkum kaffið eða teið, þá ei'um við í raun og veru komin í samband við flestar heims- álfurnar. Fötin, sápan, matvælin, hlutirnir á heimilinu — allt a þelta sín frumheimili og sögu. Mennirnir liafa verið að læra að búa til þessa hluti í þúsundir ára, þótt framleiðslan sé hrað- virk á vorum tímum. — Það er liltölulega stutt síðan farið var að neyta hrauðs, eins og það nú tiðkast. Korn hefir samt verið liaft lil matar í þúsundir ára. Fræðimennirnir Elliot-Smith og Netolitzky hafa rannsakað elztu mannlegu magana sem varðveizt hafa i landi smurninganna — Egiptalandi. Það síðasla sem jiessir fornu Egiptar liöfðu lagt sé til munns, fvrir um (iOOO árum, var bygg, hirsikorn og rótarhýði sefs nokkurs. IJveiti ræktuðu þeir einnig. Enginn veit livar vagga akuryrkjunnar hefir staðið, en sennilega hefir verið byfjað að rækta forfeður korntegundanna víðar en í einum stað i fyrstu. Byggrækt og liveitirækt er afar- gömul. Menn lialda að forfeður byggsins búi í Abessiniu. Hafrar og rúgur hafa liklega í öndverðu vaxið sem illgresi i bygg- og hveitiökrunum. Svo er það enn í fran. Þegar akuryrkjan lagði land undir fót norður á bóginn, fór svo, að i svala loftslaginu þreifst „illgresið“ betur en akurjurtirnar góðu og vann sigur á þeim í norðrinu. Illgresið varð að yrkiplöntum. í Danmörku byrjaði akuryrkja á yngri steinöld um 3000 árum fyrir Krist. Steinaldarþjóðirnar ræktuðu liveiti og bygg, það sézt á förum í fornum leirkerum. Á hronsiöldinni um 1000 árum f. Krist hófst hafraræktin í Danmörku, en rúgurinn kom ekki fyri' en á járnöld, Hirsi var líka ræktað i fornöld, Allar bárust

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.