Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 30

Náttúrufræðingurinn - 1943, Page 30
132 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN in ekki vera jafnglögg ælíð og þar er sýnt. Að öllum líkindum verður allmikið stuðsl við litnatölu og erfðafræðin notuð meir en verið liefir við ákvörðun vandgreindra tegunda. í sumum nýjustu Norðurlandaflórum er getið um litnatöluna (chromosom) aftan við nöfn tegundanna. Hefir Áskell samið skrá yfir þær litnatölur blómjurta á Norðurlöndum, sem þegar eru rannsak- aðar, og birt liana í „Botaniska Notiser“ í Lundi 1912. Þegar Flóra íslands verður gefin út næst, þyrfti að vera búið að rann- saka litnatöluna, svo að hægt sé að bæta þeim, ásamt lífmynda- flokkunum aftan við nöfn jurtanna. Ingólfur Daviðsson: Flóra Öræfa og Suðursveitar. VIÐAUKI. í Náttúrufræðingnum 1941 birlir Baldur Jolmsen læknir fróð- legan flórtilista úr Öræfum og Suðursveit. Eins og ég liefi bent á annars staðar eru slíkir listar nauðsynlegir, lil þess að fá yfirlit um útbreiðslu einstakra tegunda, en þá er einnig nauðsynlegt, að við þá sé aukið, livenær sem menn verða varir við eilthvað nýtt á þeim sömu svæðum. Sumarið 1935 för ég snöggva ferð um Austur-Skaftafellssýslu, skrifaði eg upp plöntulista þaðan hvar sem ég kom, við samanburð á þeim listum og flórulista Baldurs sá ég að nokkrar af tegundum þeim, sem ég bafði skráð vantar þar. Birtist nú viðauki þessi. Ættaröð er hin sama og í ritgerð B. J. en ættaheitum sleppt. 1. Mýrasef, Juncus alpinus, Hnappavellir, Fagurbólsmýri, Bæjarstaðarskógur, Skaptafell. 2. Laugasel', Juncus lamprocarpus, Hali Suðursveit. 3. Iílátoppastör, Carex canescens, Fagurbólsmýri. 4. Safastör, C. diandra, Sandfell. 5. Fjallastör, C. al])ina, Skaptafell. 6. Fjallasveifgras, Poa alpina, Bæjarstaðarskógur. 7. Hásveifgras. P. trivialis, Hali, Fagurbólsmýri, Skaptafell. 8. Vatnsnarvagras, Catabrosa aquatica, Fagurbólsmýri. 9. Fjallapuntur, Descbampsia alpina, Fagurbólsmýri, 10. Blátoppa, Sesleria coerulea, Fagurbólsmýri.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.