Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 7

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 7
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 101 í þvermál. Storkni eldleðjan í lagi á yfirborði jarðar, verða krystall- arnir venjulega svo litlir, vegna örari kólmmar, að þeir sjást ekki með berum augum. Myndast þá það, sem kallað er basalt eða blágrýti og grágrýti. En þunn húð á ylirborði þessara hrauna hefir storknað mjög hratt, vegna loftkælingar. í lienni hefir yfirleitt ekki unnizt tími til neinnar krystallamyndunar, og þá verður það, að blandan, þ. e. hraunleðjan, verður við kólnunina meira og meira þykkfljót- andi, án þess að breyta um samsetningu, án þess að nokkur efni skiljist frá henni, unz hún er orðin að fösturn hlut, en þessi fasti hlutur er það, sem kallað er gler. Þegar leðjan lrefir haft samsetn- ingu basailts, tölum við um basaltgler. En það er í eðli sínu í engu verulegu ifrábrugðið hinu venjulega gleri, sem framleitt er í iðnaði, aðeins nokkuð öðruvísi í efnasamsetningu. Venjulegt gler er kísil- sýruríkara en basaltgier. Og um glerkvoðuna, sem t. d. flöskugler er gert úr, gildir hið sama og hraunleðju, að sé hún kæld mjög hægt, verður lnin ekki að gleri, heldur ógagnsæjum hlut, sem saman- stendur af krystöllum. Á sama háttmá einnigiframkalla krystalla í gieri með því að halda því langan tírna við hátt hitastig. T. d. myndi glervasi krystallast og verða ógagnsær, ef hann væri látinn standa inni í ofni, t. d. við 700° C hita góða stund. Gler getur einnig krystallazt við venjulegt hita- stig, þegar tíminn er nógu langur, og það er ástæðan til þess, að gler- vasar Rómverja, sem á þeirra tímuin munu hafa verið gagnsæir og gijáandi, eru nú orðnir ógagnsæir og gljáalausir. Basaltgler getur þá myndast, ef storknun hraunleðjunnar er hröð, eins og í yfirborðshúð hraumlaga. Nú er aðalefni móbergsins fín- mulið basaftgler. En hvernig á að gera sér grein fyrir því, að heil fjöll af basaltgieri liaf'i myndazt? Það hafa menn skýrt svo, að óvenju- leg snöggkæling hafi átt sér stað, eins og nánar skal vikið að. Basaltglerið á yfirborði hrauna er kallað tachylít á erlendum mál- um. Það er svart á lit, og jafnvel þynnstu flísar, sem hægt er að slípa úr því, eru ógagnsæar. Er það talið stafa af því, að þótt storknunin hafi verið hörð, hafi sarnt örsmáir magnetítkrystallar náð að mynd- ast, en þeir eru svartir og ógagnsæir. Basaftglerið, sem móbergið er gert úr, er einnig svart á lit jjegar jjað er óveðrað, en verður brúnleitt við veðrun, og stafar af því lifcur móbergsins. En þegar slípaðar eru þunnar sneiðar úr þessu gleri kemur í ljós, að jrær eru gagnsæar. í því eru engir magnetít- krystallar, er geri það ógagnsætt. Til aðgreiningar frá tachylíti hafa menn gefið þessu gleri annað nafn og kallað sideromelan. Hið brúna

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.