Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 8

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 8
102 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN efni, sem glerið breytsit í við veðrun eða á annan hátt, hafa menn kailað palagonít, og er móbergsmyndunin á erlendum málum oft kölluð palagonítmyndunin. Sartoríus von Waltershausen hugsaði sér, að móbergið væri eld- fjallaaska og gjall, sem orðið hafði fyrir efnabreytingum við það að liggja á hafsbotni. Al. Penck komst að þeirri niðurstöðu, að það samanstæði af glerbrotu.m, sem í þunnum sneiðum væru gagnsæ. Þessi brot hefðu veðrast að utanverðu, eða stundum allt í gegn. Við efnagxeiningu reyndist glerið í engu frábrugðið venjuiegum ógagnsæum basaltglerung, og taldi Penck, að nægilega væri gerð grein fyrir uppruna þess með því að gera ráð fyrir, að það hefði myndast við sprengigos á þurru landi. Þorvaldur Thoroddsen var svipaðrar skoðunar, en taldi þó, að erfitt væri að gera sér grein f'vrir myndum móbergsins í ein- stökum dráttum. T. d. hefðu þessi sprengigos orðið að vera stórkost- legri en svo, að nokkurn samjöfnuð væri að finna í gosurn síðari tíma. En upp úr síðustu aldamótum varð alger bylting í hugmyndum manna um uppruna móbergsins, er dr. Helgi Pjeturss tók að halda því frarn, að lög af jökulurðum væru innan um og saman við mó- bergið. Þá þótti í fyrsta lagi sýnt, að móbergið væri ísaldarmyndum, og var þá ekki í öðru lagi fundin ofur-eðlileg skýring á myndun þess? Hafði ekki glerið, sem móbergið samanstendur af, einmitt myndazt við liina hröðu storknun, sem hlaut að verða, er liraun brautzt fram undir jökli? Þessi skoðun fékk styrk úr annarri átt. Brezkur steinafræðingur, M. A. Peacock að nafni, rannsakaði mó- berg hér á landi ikringum 1925 og kom fram með skýringu á því, hvernig stæði á muninum á ógagnsæu basaltgleri (tachylíti) og hinu gagnsæa gleri, sem móbergið er aðallega gert úr (sideromelan). Ástæðan fyrir því, að sideromelan er gagnsætt, segir Peacock, er sennilega sú, að storknunarhraðinn liefir verið meiri en svo, að magnetítkrystallar næðu að myndast, en það eru þeir, sem gera tachylít ógagnsætt. Þessi hraða storknun bendir til þess, að hraun- leðjan hafi orðið fyrir snöggri kælingu, eins og gera mátti ráð fyrir við gos undir jökli. Þannig virtist þetta tvennt bera að sama brunni, jökulruðningur- inn í móberginu og smásjáreinkenni móbergsglersins, að móbergið sé orðið til við snöggkælingu hraunleðju við gos undir jökli. Eftir Grímsvatnagosið 1934 komst á ný nokkur hreyfing á mó- bergsrannsóknirnar, enda bjuggust menn við að finna áþreifanlegt dæmi um myndum móbergs við þetta gos. Rannsóknir N. Nielsens

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.