Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1946, Qupperneq 22

Náttúrufræðingurinn - 1946, Qupperneq 22
116 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Það er að sjálfsögðu ekki búið að kynbæta sætu úlfabaunirnar nema lítið eitt ennþá, enda eru þær ungar að árum. En það er verið að auka afköst þeirra og bæta á ýmsan hátt á kynbótastöðvum í Þýzkalandi, Rússlandi og Svíþjóð, og nú þegar eru þær ræktaðar mjög víða í Evrópu. Sökum þess að köfnunarefnisgerlar, sem lifa í hnýðum og rótum úlfabaunanna, gera köfnunarefnisáburð að mestu óþarfan, sem og hins, að þær geta vaxið í sandi, þar sem aðrar nytja- jurtir þrífast illa, er hægt að búast við mjög aukinni ræktun þeirra um allan heim næstu áratugina. Það liafa fundizt margar fleiri stökkbreytingar hjá úlfabaunum, og með venjulegum kynbótum hafa þær verið sameinaðar í sömu stofnum. En það yrði of langt mál, ef skýrt yrði nánar frá þeim líka. Það er erfitt að velja út eina sérstaka jurt, sem dæmi um hinar merkustu jurtakynbætur Rússa. Sumir myndu ef til vill telja það merkilegast, að þar hafa kartöflur verið kynbættar svo, að þær þola frcst og þroskast fljótt, eða þá að það er hægt að rækta tómata úti vegna kynbóta á ströndum Kolaskagans. Aðrir myndu sennilega telja rúghveitið, sem sameinar í sér beztu eiginleika hveitis og rúgs, merkilegra en flest annað. Enn aðrir myndu ef til vill tala um kyn- bætur þeirra á aldintrjám, sem nú vaxa mjög norðarlega þar í landi, eða þá kynbætur hveitisins, sem gerði því kleift að flýja undan þurrkinum í héruðum svörtu moldarinriar. En flestir erfðafræðing- ar telja þó merkasta kynbótastarf Rússa vera falið í starfi hinna mörgu erfðafræðinga og grasafræðinga, sem hafa unnið að því að búa til fjölært hveiti. Á kynbótastöð einni í Síberíu hefir verið unnið að því í nær tvo áratugi að fá fram hveiti, sem hægt er að rækta norðarlega, ekki þarf að sá árlega, þótt það gefi góða uppskeru ár hvert, sem og verði gott til bökunar. Allar hveititegundirnar eru einærar, svo að sá þarf ár llvert, ef þær eiga að verða að gagni, en að sjálfsögðu vildu rnenn helzt sleppa við að plægja akur sinn oft, ef þess væri nokkur kostur. Villi- hveitin, sem eru meðal annars til á íslandi, eru náskyld hveitinu, og það er frekar auðvelt að fá fram kynblendinga á milli þeiri'a og hveit- is. Hér á landi eru aðeins til þrjár tegundir villihveitis, en samtals tilheyra rúmlega tvö liundruð tegundir þessari ættkvísl. Sumar þeirra þola vel frost og þroskast fljótt í köldum sumrum, aðrar þola vel ryð- sjúkdóma eða eru góðar fóðurjurtir. Og sumar villihveititegundir vaxa vel í óræktarjörð eða bera korn, sem prýðilegt mjöl fæst úr. Það er því engin furða, þótt margir hafi reynt að fá fram kynblendinga milli villihveitis og hveitis.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.