Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 26

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 26
120 NÁTTÚRUFRÆ.ÐINGURINN ráðin fara. Ef engu verður við bær sparað í upphafi og þeim sniðinn nógu víður stakkur strax, þori ég hiklaust að lofa öllum gulli og grænum skógum á grundvelli árangra þeirra á ókomnum árum. En ef allt til þeirra verður strax frá upphafi skorið við nögl, getur eng- inn krafizt þess, að þær geri nema hálft gagn. Fyrstu samanburðartilraunir nreð grös og belgjurtir með tiiliti til kynbóta fyrir íslenzk skilyrði, hafa verið hafnar í Kópavogi í sumar. Þegar komið var í eindaga með þessar tilraunir í vct af ástæðum, sem ekki bera vott um framsýni, kom itinn nýi fulltrúi í landbúnaðar- ráðuneytinu, Árni G. Eylands, því til leiðar, að tilraununum var fenginn staður í nánd við tóftirnar, þar sem eiðarnir voru svarnir forðurn. Að því er bezt verður séð, er jarðvegur allur og lega lands- ins að óskum, þótt því miður vanti freitt vatn til upphitunar á gróð- urhúsum. Landbúnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans var gefinn kostur á þessu landi öllu til frambúðar fyrir tilraunir í jurtakynbót- um og jarðvegsefnafræði, en þegar þetta er skrifað, hefir enn ekki fengizt endanlegur úrskurður um framsal þess, þótt nú fari óðum að líða að þeim tíma, er búa þarf iand undir ræktun næsta ár. Mér er sagt, að heilbrigðisstjórn landsins líti hýru auga á Kópavog og hafi allengi hugsað sér að byggja þar hæli fyrir alla fávita þjóðarinnar rétt við mest farna þjóðveginn svo að segja mitt inni í tveim stórunr bæjum. Vonandi verður þó hin brýna þörf landbúnaðarins og garð- ræktarinnar ekki látin víkja fyrir fávitahælinu á þessunr fornfræga stað.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.