Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 28

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 28
122 2 IÁTTÚRUFRÆ£)1NGURINN 1. mynd. Lambahvammur í Jökulsárgili. (Ljósm.: E. Sigurgeirsson.) Aftur á móti er Oxarfjörðurinn allur meira eða minna vaxinn birkikjarri allangt inn með Jökulsá, og jafnvel er rnikið kjarr í gljúfrinu langt suður fyrir Hafursstaði (sjá síðar). Birkið gefur sveitinni einkar vinalegan svip, svo hún mun standa fegurstu sveit- um annars staðar á landinu fyllilega á sporði í allri viðkynningu, og það því fremur sem hver bærinn er öðrum betur hýstur. Sem bein afleiðing af liinum víðáttumikla kjarrskógi er raklendi alveg hverfandi, og verður þvi gróðurinn yfir höfuð að tala einhliða, enda engin há gróðursæl fjöll heldur til úrbóta. Miðsveitis austan Jökulsár eru víðáttumiklir sléttir sandar, nálega gróðurlausir, en þar austan við sandhólar, alvaxnir gulvíði. Sums staðar liefur hér átt sér stað uppblástur, svo að sjá má gróðureyjar í sandhafinu með þverhníptum bökkum, en út úr þeim stendur urmull af rótartágum gulvíðisins. Melgresi er hér og víða. Þá tekur við stór flatneskja lengra til austurs, þar sem aðalgróður- inn er gulvíðir. Er það svæði nefnt Víðrar. Eru runnar þessir víða tveggja metra háir og mjög víðáttumiklir. En því miður hefur (sennilega) einhver sýki herjað á þá á s. 1. árum, því mjög víða stóðu blaðlausir eða feysknir stofnar, er ég fór þar um. Austan Víðranna eru fáeinar tjarnir og mýradeigjur, eina raklendið, sem teljandi er í meginhéraðinu.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.