Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1946, Blaðsíða 33

Náttúrufræðingurinn - 1946, Blaðsíða 33
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 127 Skarfakál (Cochlearia officinalis L.). Presthólar, Núpasveit, 3. ágúst 1944. Óx uppi í háum kletti (Slaga), alllangt norðan bæjar. Var töluvert af smáum skeljalnotum umhverfis klett þennan, og henti það til þess, að plantan væri hingað komin af völdum fugla, sennilega nokkuð langt að, því að skarfakál vex hvergi á næstliggjandi sjávarströnd. Birkifjóla (Viola epipsila Led.). Lundur, Öxarfirði, 29. júlí 1944. Á fáum stöðum og hvergi í blóma. Óx innan um mýrfjóluna. Þrenningargras (Viola tricolor L.). Ærlækur, í túnjaðri 29. júlí 1944. Hvergi annars staðar. Hefir sennilega einhvern tírna slæðzt úr blómagarði heimilisins, en er nú auðsjáanlega búið að nema land. Jarðarber (Fragaria vesca L.). Vestara-Land, Öxarfirði, 8. ágúst 1944. Mörg eintök í lilóma. Fann þau ekki annars staðar; en að skýrra manna sögn eru þau talin vaxa í Forvöðum. Baunagras (Lathyrus maritimus Bigel). Jökulsárhraun, Öxarfirði, 29. júlí 1944. Víða og mikið í stað, bæði í blóma og með hálfþroskuðum aldinum. Mýraertur (L. palustre L.). Geitadalur, í suðvestur frá Ærlæk, 30. júlí 1944. Öxarnúpur, 31. júlí 1944, á 2 stöðum m. a. innan um skógarkjarri Lundsskógur oig Skinnastaðaskógur, 5. ágúst 1944. Tegundin var alls staðar blómlaus, nema í Geitadalnum, þar stóð hún í fullum blóma, óx á víð og dreif inni í lágvöxnum birkirunna, ca. 100 m2 stórum, og hallaði vaxtar- staðnum mót suðvestri. Blómin eru sem næst því að vera rósrauð við opnunina, en verða fljótt fjólublá og sitja alls staðar 2 á hverjum stilk. Blaðpörin oftast 2 (sjaldan 3). Að ég fann tegund þessa í Geitadalnum, á ég að þakka frú Halldóru Gunnlaugs- dóttur að Ærlæk, sem er mjög glögg á plönlur. Sumarið 1936 (ef ég man rétt) kvaðst hún ltafa tekið eftir einkennilegri jurt í nefndum dal, en ekki haft þá tækifæri til að athuga hana nánar. Hefði svo þessi fundur fallið í gleymsku í önnum dagsins. En við eftirgrennslan mína um fágætar plöntur í héraðinu mundi hún allt í einu eflir hinni sérkennilegu jurt, er hún rakst á, og benti ntér á staðinn. Þennan fund má telja hinn merkasta, því tegundin hefur aldrei fyrr fundizt á Norðurlandi, og engin blómguð eintök eru til frá hinum fáu fundarstöðum, sem áður voru kunnir hér á landi. Mjög er líklegt, að mýraertur finnist víðar í liinu víðátlu- mikla skóglendi Öxarfjarðar, en þær munu hvergi bera blóm, nema þar sem sérstaklega hagkva’m skilyrði eru ráðandi, eða svipuð þeim, sem eru í Geitadalnum. Sigurskúfur (Chamaenerion angustifolium Scop). Hafursstaðir og Árholt (eyðibýli), 8. ágúst 1944. Á báðum þessum stöðtim í þurrum móabörðum, sem er mjög óvanalegt. Var tegundin því mjög smávaxin og vafasamt, hvort hún blómgast hér nokkurn tíma. Annars vex hún á nokkrum stöðum i gljúfr- um Jökulsár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.