Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 45

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 139 var boðið til ráðstefnu í London fyrir allar þjóðir, sem hlut áttu að máli, og voru þar settar reglur um veiðarnar. Á hverju ári var fyrirfram ákveðið, hvar veiðarnar skyldu stundaðar og liversu lengi. Voru veiðarnar bundnar við þau svæði, sem hvalastofninn var beztur á, en bannaðar þar, sem veiðar myndu valda tjóni á stofninum. Gerðu menn sér vonir um að geta á þennan hátt varðveitt hvala- stofninn þannig, að veiði héldist trygg, enda þótt alltaf væri ískyggi- lega hátt hlutfall óþroskaðra hvala í aflanum. Allar þjóðir, sem hlut áttu að máli, samþykktu reglur þessar, nema Japanar, en Þýzkaland hélt ekki ákvæðin, þótt það hefði undirritað samninginn. Nútíma úthafshvalveiðimóðurskip er 20,000 tonn og þar yfir, útbúið með dráttarbraut, sem hvalirnir eru dregnir á upp á flesj- unarþilfarið. Unnið er úr hráefninu með hinum fullkomnustu tækjum. Skipshöfnin er nokkur hundruð manns. Skipið er sjálfu sér algerlega nógt, og hefir meðferðis nægan eldsneytisforða fyrir verk- smiðjuna, veiðiskipin, sín eigin ferðalög og til þess að eima mikið af vatni, sem þarf til iðnaðarins. Aðalfarmur skipsins lieim er að sjálfsögðu lýsið, sent notað er til smjörlíkis og sápugerðar, en auk Jress er kjötið og beinin unnið í ióðurbæti, áburð og beinamjöi. Síðasta áratuginn fyrir stríð var heimsaflinn frá 24,000 og upp í 44,000 hvalir á ári, og var unnið úr honum frá 400,000 og upp í rúm 540,000 tonn af lýsi Á fyrstu vertíðinni í stríðsbyrjun var hvalveiðaflotinn í Suður- íshafinu, en á heimleðinni var sumum skipanna sökkt, og öðrum náðu Þjóðverjar, sem tókst að koma að minnsta kosti einu með full- fermi til Bordeaux. Flest skipin, sem undan komust, voru notuð til eldneytisflutninga, og fórust mörg þeirra í þeim. Nú hefja hval- veiðaskipin veiðar að nýju. Eru þau íærri en áður, en sum ágætlega útbúin, ný skip, smíðuð sérstaklega fyrir slíkar veiðar. Útkomu ver- tíðarinnar er beðið með eftirvæntingu, bæði vegna hins mikla feit- metisskorts, sem er í heiminum, og eins vegna hinnar vísindalegu þýðingar hennar; því að hvalirnir liafa notið friðunar í 3—4 ár, og geta verkanir hennar á fjölda og stærð hvalanna iiaft liina mestu þýðingu vísindalega og einnig grundvallarþýðingu fyrir framtíð hvalveiðaiðnaðarins. (Þýtt úr Endeavour — S. Þ.)

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.