Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 46

Náttúrufræðingurinn - 1946, Page 46
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 1*10 Árni Friðriksson: Vöruhandbók lón E. Vestdal samdi. — 1. bindi. Fyrir nokkrum vikum kom á markaðinn bók sú, sem að ofan greinir. Bókin er gefin út af fjármálaráðuneytinu, og er rnikil að vöxtum, yfir 330 blaðsíður, með 7 myndum í lesmáli og 9 sérstökum myndablöðum, sem rúma 25 myndir. Bókin er gefin út að fyrirlagi tollstjóra í Reykjavík, og er, eins og höfundurinn tekur fram í formála, tvennt í senn, skilgreining á atriðum tollskrárinnar, en jafnframt. leiðbeining fyrir tollskoðunar- menn og kaupsýslumenn, sem verzla með erlendan varning, um allt það, er lýtur að tollflokkun. Þó að ýmslegt það, sem kemur til at- 'hugunar við tollskoðun, hafi orðið að sitja í fyrirrúmi, leikur það ekki á tveim tungum, að bókin hefir hinn mesta fróðleik að geyma fyrir þá, sem vilja leita um uppruna hinna margvíslegu vöruteg- unda, meðferð þá, sem þær hafa sætt, hvernig framleiðslu þeirra lrefir verið háttað, liverja eiginleika þær hafi til brunns að bera og itvernig þær séu notáðar. Ennfremur er, eins og að líkum lætur, fjölrætt um þau einkenni, sem nrega verða til gagns við að þekkja eina vöru frá annari. í inngangi bókarinnar getur höfundur allnákvæmlega um að- ferðir við vörurannsóknir. Er þar gerð grein fyrir, hvernig taka skuli sýnishorn, hvernig mæla skuli lengd, og livernig finna skuli eðlisþyngd, bræðslumark, suðumark og hörku. Loks er kafli þar, sem lýst er smásjánni og notkun hennar, einkum til vörurannsókna. Þeim, sem kynnast vilja smásjá eftir íslenzkri heimild, kann ég ekki að vísa á annan stað en þennan. Sjálf bókin skiptist í fimm kafla, sem kallaðir eru flokkar, og svara þeir til fimm fyrstu vöruflokkanna í tollskránni, sem gefin var út 1940. Flokkar þessir skiptast aftur í greinar, sem kallaðar eru kaflar í samræmi við tollskrána, og eru kaflarnir 27 að tölu. Fyrsti flokkurinn gerir grein fyrir lifandi dýrum og afurðum úr dýrarík- inu, annar flokkurinn fjallar um afurðir úr jurtaríkinu, sá þriðji um feiti og feitar olíur, smjörlíki og vax úr jurta- og dýraríkinu, sá fjórði um matvælaframleiðslu, drykkjarvörur og tóbak, og loks er fimmti flokkurinn um jarðefni. Ástæðan til þess, að ég hef kosið að minnast nokkuð á vöruhand-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.