Náttúrufræðingurinn - 1946, Síða 46
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
1*10
Árni Friðriksson:
Vöruhandbók
lón E. Vestdal samdi. — 1. bindi.
Fyrir nokkrum vikum kom á markaðinn bók sú, sem að ofan
greinir. Bókin er gefin út af fjármálaráðuneytinu, og er rnikil að
vöxtum, yfir 330 blaðsíður, með 7 myndum í lesmáli og 9 sérstökum
myndablöðum, sem rúma 25 myndir.
Bókin er gefin út að fyrirlagi tollstjóra í Reykjavík, og er, eins og
höfundurinn tekur fram í formála, tvennt í senn, skilgreining á
atriðum tollskrárinnar, en jafnframt. leiðbeining fyrir tollskoðunar-
menn og kaupsýslumenn, sem verzla með erlendan varning, um allt
það, er lýtur að tollflokkun. Þó að ýmslegt það, sem kemur til at-
'hugunar við tollskoðun, hafi orðið að sitja í fyrirrúmi, leikur það
ekki á tveim tungum, að bókin hefir hinn mesta fróðleik að geyma
fyrir þá, sem vilja leita um uppruna hinna margvíslegu vöruteg-
unda, meðferð þá, sem þær hafa sætt, hvernig framleiðslu þeirra
lrefir verið háttað, liverja eiginleika þær hafi til brunns að bera og
itvernig þær séu notáðar. Ennfremur er, eins og að líkum lætur,
fjölrætt um þau einkenni, sem nrega verða til gagns við að þekkja
eina vöru frá annari.
í inngangi bókarinnar getur höfundur allnákvæmlega um að-
ferðir við vörurannsóknir. Er þar gerð grein fyrir, hvernig taka
skuli sýnishorn, hvernig mæla skuli lengd, og livernig finna skuli
eðlisþyngd, bræðslumark, suðumark og hörku. Loks er kafli þar, sem
lýst er smásjánni og notkun hennar, einkum til vörurannsókna.
Þeim, sem kynnast vilja smásjá eftir íslenzkri heimild, kann ég ekki
að vísa á annan stað en þennan.
Sjálf bókin skiptist í fimm kafla, sem kallaðir eru flokkar, og
svara þeir til fimm fyrstu vöruflokkanna í tollskránni, sem gefin var
út 1940. Flokkar þessir skiptast aftur í greinar, sem kallaðar eru
kaflar í samræmi við tollskrána, og eru kaflarnir 27 að tölu. Fyrsti
flokkurinn gerir grein fyrir lifandi dýrum og afurðum úr dýrarík-
inu, annar flokkurinn fjallar um afurðir úr jurtaríkinu, sá þriðji um
feiti og feitar olíur, smjörlíki og vax úr jurta- og dýraríkinu, sá
fjórði um matvælaframleiðslu, drykkjarvörur og tóbak, og loks er
fimmti flokkurinn um jarðefni.
Ástæðan til þess, að ég hef kosið að minnast nokkuð á vöruhand-