Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 50

Náttúrufræðingurinn - 1953, Page 50
44 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Varpheimkynni lundans eru við norðanvert Atlantshaf og nálæga hluta Norður-lshafsins. Hann er varpfugl á austurströnd Norður- Ameríku frá Maine til Labrador, Grænlandi (einkum vesturströnd- inni), íslandi, Jan Mayen, Bjarnareyju, Svalbarða, Nóvaja Zemlja, Kolaskaga og Murmanströnd, Noregi, vesturströnd Svíþjóðar (Bohus- lan), Færeyjum, Bretlandseyjum, Ermarsundseyjum og smáeyjum við Bretagne-skaga í Frakklandi. Hér á landi er lundinn afar algengur varpfugl allt í kringum land. Hvað einstaklingafjölda snertir, mun hann að líkindum vera algeng- astur allra íslenzkra fugla. Varpstöðvar lundans eru ýmist í eyjum fyrir landi eða í björgum og bröttum fjallshlíðum við sjó. Viða eru miklar lundabyggðir í lágum grasi vöxnum eyjum, en óvíða munu þó vera stærri lundabyggðir en í háum, sæbröttum og óbyggðum eyj- um, en þar verpur lundinn bæði í björgunum utan með þeim og uppi á þeim. Hins vegar er mér ekki kunnugt um, að lundinn verpi nokkurs staðar á flatlendum ströndum á meginlandi Islands. Þar er hann aðeins í björgum eða bjargbrúnum eða sæbröttum fjöllum. En lundabjörgin geta verið mjög margvísleg, eða allt frá lágum kletta- bökkum og upp í fleiri hundruð metra há, þverhnípt standbjörg. Eins og kunnugt er verpur lundinn í holur, er hann oftast grefur sér sjálf- ur. I björgum verpur hann því mest í bjargbrúnunum eða í gróður- torfum eða gróðurflám niðri í björgunum sjálfum. Oft verpur hann þó i glufum eða holum í berginu eða i urðum við bjargrætumar. Undir slíkum kringumstæðum er auðvitað ekki um holugröft að ræða. Þar sem lundinn verpur í lágum, grasi vöxnum eyjum með gljúpum jarðvegi eru lundaholurnar oftast um 1.5 m á lengd. Holuopið er stundum alveg kringlótt og að meðaltali um 15 cm að þvermáli. Oft er þó breidd holuopsins meiri en hæðin. Venjulega liggur holan lítið eitt skáhallt niður á við, að minnsta kosti fremst. Sjaldan er holan alveg bein frá holuopi til enda, heldur meira eða minna bogadregin og stundum jafnvel með kröppum beygjum. Yfirleitt má þó segja, að lengd holunnar og lögun fari mikið eftir jarðvegi og öðrum ytri skil- yrðum á hverjum stað. Lundinn er félagslyndur fugl, sem oft verpur þúsundum saman í stórum byggðum. Á slikum stöðum getur jarð- vegurinn verið svo sundurgrafinn, að þessar neðanjarðarbyggðir lund- ans hrynji saman, þegar gengið er þar um. Sjaldan verpa einstök 1. mynd. Lundabyggð í Skrúðnum, S.-Múl. — A puffin colony on the island Skrúdur, E. lceland. — Ljósm. Bjöm Bjömsson 1951.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.