Náttúrufræðingurinn - 1977, Page 18
síðustu árum þrátt fyrir eftirgrennsl-
an. Teikningin er af íslensku eintaki.
Zoniloides nitidus (Míiller), vallbobbi.
21. mynd (C).
Slæðingur. Eitt ungt eintak fundið í
Hveragerði 1942 (Armitage og Mc-
Millan 1963). Teikningin er eftir
þýsku eintaki.
Zoniloides arboreus (Say), húsabobbi.
21. mynd (D).
Slæðingur. Hefur fundist í gróður-
húsum í Hveragerði og Borgarfirði
(Waldén) og mörg eintök á einum
stað utanhúss nálægt Tjörninni í
Reykjavík (höf.). Teikning er af ein-
taki frá Reykjavík.
VITRINIDAE
Vitrina pellucida (Múller), hvanna-
bobbi. 22. mynd (A).
Samnefni: Helicolimax og Phenacoli-
max pellucidum.
Algengasti landsnigill á íslandi.
Finnst um allt land og er eini land-
kuðungurinn, sem finnst á miðhá-
lendinu — lifir m. a. í Þjórsárverum
(höf.) og í Esjufjöllum í Vatnajökli
(Hálfdán Bj.). Islenski hvannabobb-
inn er talinn sérstök undirtegund: is-
landica Forcart (Forcart 1955).
EUCONULIDAE
Euconulus fulvus (Múller), keilu-
bobbi. 22. rnynd (B).
Samneíni: Conulus fidvus.
Algengur á láglendi um allt land.
HELICIDAE
Trichia Idspida (L.), loðbobbi.
22. mynd (D).
Samnefni: Hygrornia hispida, Tro-
chulus hispidus.
22. mynd. A) Vitrina pellucida (Múll.), hvannabobbi. B) Euconulus fulvus (Múll.),
keilubobbi. C) Punctum pygmaeum (Drap.), agnarögn. D) Trichia hispida (L.),
loðbobbi.
80