Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 23
Síðasii vindingurinn 1,5 sinnum
breiðari en næstsíðasti.
Breidd 3,0-4,0 mm.
Hæð 2,0 mm.......Vitrea crystallina
(Miill.). 20. mynd (A).
21 b Vindingar 4y2.
Síðasti vindingurinn
minna en 1,5 sinnum
breiðari en næstsíðasti.
Breidd 2,5 mm eða minna.
Hæð 1,2—1,3 mm.
Munni lítið eitt ]nengri
en á undanfarandi tegund
(mynd) . . Vitrea contracta (Westerl.).
20. mynd (B).
22a Hyrnan kemur talsvert upp
fyrir grunnvindinginn sem
flöt keila (sjá 21. mynd
(C og D)).
Kuðungurinn eins á litinn
að ofan og neðan............... 23
22b Hyrnan kenmr lítið upp
lyrir grunnvindinginn (sjá
21. mynd (A) t. d.).
Kuðungurinn eins
á lit að ofan og neðan
eða mjólkurlitur við naflann .... 24
23a Kuðungurinn brúnn.
Nokkuð áberandi keilulaga.
........Zonitoides nitidus (Múll.).
21. mynd (C).
23b Kuðungurinn gulbrúnn
eða bleikbrúnleitur.
Bundinn við gróðurhús
og volga bletti utanliúss.
Ekki eins áberandi keilulaga
og undanfarandi tegund.
........ Zonitoides arboreus (Say).
21. mynd (D).
24a Breidd meiri en 5,0 mm.
Vindingar 4y2—5.
Yfirborðið slétt og gljáandi.
Kuðungur mjólkurlitur við
naflann.......... Oxychilus alliarius
(Miller). 21. mynd (A).
24b Breidd minni en 4,5 mm.
Vindingar ?,y2—4.
Yfirborðið rákótt.
Kuðungur jafnlitur............. 25
25a Kuðungur gljáandi.
Yfirborðið alsett reglulegum
rákum, sem mynda geisla-
mynstur út frá miðju
(stækkun). Skýr saumrönd.
....Nesovitrea hammonis (Ström).
20. mynd (C).
25b Kuðungur hálfmattur.
Ekki áberandi mynstraður.
Ofanverð útröndin slútir
dálítið yfir munnann.
Saumurinn dýpri en á
undanfarandi tegund og
saumrönd ekki áberandi.
Nafli dýpri en á
undanfarandi tegund.
Við 50 sinnum stækkun sést
fíngert, reglulegt net-
mynstur . . Aegopinella pura (Alder).
20. mynd (D).
Þakkarorð
Margir liafa veitt höfundi þessarar
greinar mikla aðstoð við samningu
hennar og öflun gagna. Hið ágæta
landkuðungasafn Páls Einarssonar
jarðeðlisfræðings er kveikjan að þessu
verki. Henrik Waldén við náttúru-
gripasafnið í Gautaborg hefur veitt
mikilsverðar upplýsingar og aðstoð
við tegundagreiningu. Christopher R.
C. Paul og Adrian Norris hafa að-
stoðað við greiningar. Dr. Finnur
Guðmundsson veitti ótakmarkaðan
aðgang að safni Náttúrufræðistofnun-
ar íslands. Hálidán Bjiirnsson nátt-
úrufræðingur og bóndi, Kvískerjum,
og Hjörleifur Guttormsson líffræðing-
ur, Neskaupstað, hafa látið í té ómet-
anlegar upplýsingar um útbreiðslu
nokkurra tegunda. Líffræðingarnir
Erlendur Jónsson, Jón Baldur Sig-
urðsson, Karl Skírnisson og Kristbjörn
Egilsson aðstoðuðu við söfnun og
fleira. Jón Bogason rannsóknarmaður
veitti aðgang að safni sínu. Þessum
85