Náttúrufræðingurinn - 1977, Qupperneq 26
Erlingur Hauksson:
Útbreiðsla og kjörsvæði fjörudýra
í Breiðaíirði
Inngangur
Þessi grein fjallar um könnun á út-
breiðslu fjörudýra í Breiðafirði senr
gerð var sumarið 1973, er við Karl
Gunnarsson líffræðingur unnum að
mælingum á þangmagni í Breiðafirði
fyrir Undirbúningsfélag þörunga-
vinnslu h.f. (Karl Gunnarsson og Er-
lingur Hauksson 1973). Litlar rann-
sóknir á útbreiðslu dýra hafa áður
verið gerðar í Breiðafirði. Könnun
þessi bætir nokkru í skörð hinnar
gloppóttu myndar af útbreiðslu fjöru-
dýra hér við land og gefur nákvæmari
útbreiðslumörk sumra tegunda við fs-
land.
Sérstakar þakkir vil ég færa dr. Arn-
þóri Garðarssyni prófessor, sem var
umsjónarmaður þessa verkefnis og
leiðbeindi við ákvörðun burstaorma,
dr. Agnari Ingólfssyni prófessor, sem
leiðbeindi við ákvörðun krabbadýra,
og Karli Gunnarssyni líffræðingi fyrir
gott samstarf við sýnatöku. Þakkir
færi ég einnig Guðmundi Ólafssyni
líffræðingi í Flatey og eyjabændunum
Jóni Daníelssyni, Nikulási Jenssyni,
Gísla Jóhannssyni, Hafsteini Cxtið-
mundssyni og fjölskyldum þeirra fyrir
hlýjar móttökur og margvíslega hjálp.
Framkvcemd
Stöðvar í Vatnsfirði, í Kjálkafirði,
á Reykjanesi, á Skarðsströnd og í út-
eyjum eru þær sömu og skorið var
þang á og voru staðsettar til að gefa
sem liesta mynd af magni klóþangs í
norðaustanverðum Breiðafirði (Karl
Gunnarsson og Erlingur Hauksson
1973). Síðan bætti ég við stöðvum á
Melanesi, á Hagaboða, í Gilsfirði, í
Hvammsfirði og á Snæfellsnesi, til
þess að bæta við upplýsingum um út-
breiðslu fjörudýra í Breiðafirði. Söfn-
unarstöðvar (1. mynd og Tafla 1)
urðu alls 35 talsins. Söfnun hófst í
júní og lauk í september 1973.
Á hverri stöð var dýrum safnað á
fjöru, frá efri mörkum kleltadoppu
(Littorina saxatilis (Olivi)) að efri
mörkum þarabeltisins (Laminaria
sp.). Reynt var að leita á sem fjöl-
breytilegustum stöðum í fjörunni og
fá sem flestar dýrategundir á hverri
stöð.
Fjörur Breiðafjarðar
Athugunarsvæðið nær frá Rauða-
sandi og Öndverðarnesi og allt inn í
botn Gilsfjarðar og Hvammsfjarðar.
Fjörur allra skerja og eyja í firðinum
Náuúrufræðingurinn, ‘17 (2), 1977
88