Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 28

Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 28
TAFLA 1 Söfnunarstöðvar i Breiðafirði, við könnun á útbreiðslu fjörudýra sumarið 1973. Stöð nr. 1 Melanes á Rauðasandi 2 Hagaboði á Barðaströnd 3 Þrælavogur í Vatnsfirði 4 Gíslalækur í Vatnsfirði 5 Vatnsdalsárós í Vatnsfirði 6 Auðshaugur í Kjálkafirði 7 Auðnar í Kjálkafirði 8 Skeiðnes í Kjálkafirði 9 Skiptá í Kjálkafirði 10 Sel í Kjálkafirði 11 Litlanes í Kjálkafirði 12 Sitrufjara í Flatey 13 Kjóatangi á Flatey 14 norðanverð Svefney í Svefneyjum 15 sunnanverð Svefney í Svefneyjum 16 norðanverð Heimaey í Hvallátrum 17 Borgir í Hvallátrum 18 Langey í Sviðnum 19 Sandflögur í Skálaeyjum 20 Laugaland í Þorskalirði 21 Klauf á Reykjanesi 22 Stekkjarvogur á Reykjanesi 23 Miðhús á Reykjanesi 24 Hrafnanes á Reykjanesi 25 Gilsfjarðarbotn 26 Fagradalshlíð á Skarðsströnd 27 Skarðsstöð á Skarðsströnd 28 Melar á Skarðsströnd 29 Langeyjarnes á Skarðsströnd 30 Staðarfell í Hvammsfirði 31 Kambsnes í Hvammsfirði 32 Mjóitangi í Hvammsfirði 33 Hrísanes í Álftafirði 34 Skarfatangi undir Eyrarfjalli 35 leiran vestan við Grundarfjarðar- kaupstað kennandi fyrir strandlengjuna frá Rauðasandi að mynni Vatnsfjarðar og eru jaær yfirleitt allbrimasamar. 2. Klettafjörur og leirur í fjörðum Barðastrandarsýslu frá Vatnsfirði í Gilsfjörð. Skjólsælar og mjög grósku- miklar klóþangsfjörur með leir á milli harðra klappa og stórgrýtis. Yfirleitt gætir ferskvatns í fjörðum þessum og því meir sem innar dregur. 3. Úteyjar. Allar eyjar og sker í Breiðafirði, sem eru ekki beint tengd ströndinni og nrynni fjarða. Hér er urn að ræða mismunandi gerðir af fjörum. Hreinar klettafjörur sem snúa mót opnu hafi eða sundum og geta verið allbrimasamar eða skjólsælar el’tir legu. Leirur í skjóli milli eyja og skerja eða í vogum. Við úteyjar gætir ferskvatns varla eða alls ekki í fjörunum og hafræn skilyrði ríkja. 4. Skarðsströnd. Frá Gilsfirði til Langeyjarness, yfirleitt skjólsælar fjör- ur. Víðast hvar grófar leirfjörur með klappartöngum vöxnum klóþangi. Ferskvatnsáhrif virðast frernur lítil, nema í skjólsælum leirvogum sem skerast inn í ströndina. Fjörur á Skarðsströnd eru svipaðar fjörurn Barðastrandarsýslu, en vegna mismun- andi legu held ég jjeini aðskildum. 5. Hvammsfjörður. Mjög skjólsælar leir- og sandfjörur, með þangivöxn- um steinum og töngum. Ferskvatns- áhrif virðast vera talsverð. 6. Snæfellsnes. Utan mynni Hvammsfjarðar og vestur á Öndverð- arnes. Mjög breytilegar fjörur. Skjól- sælar leirur með jiangivöxnum stein- hnullungum og malartöngum inn í ljörðum. Þar gætir yfirleitt ferskvatns. Úti á nesjum og fyrir opnu liafi eru brimasamar klettafjörur og malar- fjörur, án umtalsverðra ferskvatns- áhrifa. Útbreiðsla legunda Upplýsingar um útbreiðslu tegunda 90

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.