Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 41
Jón Jónsson:
Tví-Bollar og Tvíbollahraun
Inngangur
Við Grindarskörð er röð a£ linúk-
um, senr bera við himin norðan frá
séð og flestir munu nefna Bolla, Stóra-
Bolla, Mið-Bolla eða Tví-Bolla og
loks Þrí-Bolla (1. mynd). Að minnsta
kosti tvö þessara nafna eru notuð um
móbergshnúka, sem harla litla bolla-
lögun liafa, og er raunar með ólíkind-
um að nöfn þessi liafi þeim nokkru
sinni verið gefin eða ætluð. Gildir
þetta um Stóra-Bolla og Þrí-bolla en
<)ðru máli gegnir urn Mið-Bolla eða
Tví-Bolla, sem hér verða nú gerðir
að umtalsefni. Ekki dettur mér í hug
að efast um að Bolla-nöfnin eigi við
gígi þá og gígskálar, sem þarna eru,
en í einhverju undarlegu hugsunar-
leysi hafa þau verið færð yfir á þann
lduta landslagsins, sem er mest áber-
andi, séð úr byggð. Stóri-Bolli er
einna besta dæmið um þetta. Hann
1. myncl. Grindarskörð. Tví-Bollar á nriffri myndinni. Stóri Bolli er norðan í hnúkn-
um, sem ber hæst til vinstri á myndinni.
Náttúrufræðingurinn, 47 (2), 1977
103