Náttúrufræðingurinn - 1977, Page 45
3. mynd. Gísli Sigurðsson við jaðar Tvíbollahrauns hjá Helgafelh. Greina má jarð-
vegslagið og ljósa öskulagið M:l í ]jví undir hrauninu.
hrauninu er eitt svart öskulag all-
þykkt. Ekki var mér Ijóst fyrr en all-
löngu síðar að þarna var unt tvö
hraun að ræða og það var undir yngra
hrauninu, sem jarðvegslagið var.
Við nákvæma athugun kemur í ljós
að örþunn hraunlæna úr Tvíbolla-
hrauni hefur runnið upp að Helga-
felli, vestur með því að sunnan og
beygt norður á við við norðvestur-
horn fellsins þar sem áðurnefndur far-
vegur hefur grafist inn undir hraun-
ið. Örlitlu norðar hefur það rnætt
Gvendarselshrauni, sem komið er upp
austan i Gvendarselshæð og fyllir
svæðið milli hennar og Helgafells.
Mót þessara tveggja hrauna eru afar
ógreinileg en líklegt að Tvíbolla-
hraun sé yngra.
Skal nú vikið að jarðvegssniðinu
og því, sem það hefur að segja. Ekki
er mér kunnugt um nema 2 ljós ösku-
lög á þessu svæði og hefur Einar
Gunnlaugsson (1973) fundið þau á
nokkrum stöðum, m. a. við Vatns-
skarð og Djúpavatn. Eldra lagið er
frá Heklu, H3, og samkvæmt niður-
4. mynd. Tvíbollahraun og jarðvegslag-
ið undir því við Helgafell.
Skýringor:
im
hraun
kolaðar
jurtaleifar
sendin mold
Ijós aska
svört aska
fast berg
107