Náttúrufræðingurinn - 1977, Síða 63
Jón Jónsson:
Jarðhiti í Vandræðatungum
Það var 20. október 1964 að Gísli
Sigurbergsson bóndi í Svínafelli í
Hornafirði fann jarðhita í Viðborðs-
dal á þeim stað er heitir Vandræða-
tungur, en þær eru í vesturlilíð dals-
ins og liafa sennilega fengið nafn sitt
af því hve erfitt er að smala landið.
Djtip gil og gljúfur ná þarna að heita
má frá dalbotni upp í efstu brúnir
en milli þeirra eru tungur þar sent
sauðfé getur haldið sig. Erfitt eða
ómögulegt mun vera að komast yfir
þessi gil víða og verður því ýmist að
fara upp á háfjall eða niður í dal til
þess að komast leiðar sinnar. Ástæð-
an fyrir því að ekki var vitað unt
þennan jarðhita fyrr er einfaldlega
sú að fram til þessa tíma var hann
hulin jökli og var raunar í jökulskúta
þegar hann fannst áður nefndan dag.
Nokkur ár eru síðan ég hafði spurn
af þessurn jarðhita en ekki var það
fyrr en sumarið 1975 að mér gafst
tækifæri til þess að skoða staðinn en
það var 28. ágúst og í hinu fegursta
veðri.
Miklar breytingar liafa undanfarna
áratugi orðið á jöklum á þessu svæði
sem víðar. Þar sem jöktxll lá yfir fyrir
einum tug ára eru nú sandar og aur-
ar sem óðast eru að gróa upp.
Fjölbreyttar bergmyndanir eru í
Viðborðsdal. Sunnan hans er skamrnt
í gabbrófjallið Viðborðsfjall en norð-
an eru líparítmyndanir Jökulfells en
það fjall hefur áður skilið Viðborðs-
jökul frá Hoffellsjökli, en vesturhluti
hans heitir raunar Svínafellsjökull.
Að öðru leyti er blágrýti ráðandi berg-
myndun um dalinn og má fremst í
honum sjá hvernig blágrýtishraunin
hafa runnið upp að líparítfjallinu,
sem því er eldra.
Fjöldi ganga er á Jiessu svæði og
l'gSH þeir bæði gegnum líparítið og
svo gegnum blágrýtislögin frá dal-
botni upp í efstu brúnir.
Oft hafa gilin grafist meðfram slík-
um göngum. Eitt þessara gilja er fyrir
framan innstu Vandræðatunguna og
neðst í Jtví austan megin er jarðliit-
inn. Vatnið seytlar þar fram undan
kletti við læk, sem kemur ofan úr gil-
inu. Það kemur Jtar víðs vegar með-
fram berggangi á um 30 m löngum
kafla og út úr jökulbergslagi (tillíti),
sem gangurinn sker. Hitaáhrifa frá
ganginum gætir báðum megin við
hann um 2,5—3 m frá honum til
hvorrar hliðar. Sjálfur er gangurinn,
sem raunar er margfaldur, 4—6 m
breiður. Heita vatnið seytlar fram á
nokkrum stöðum en kemur einkum
fram vestan undir lítið eitt hallandi
Náttúrufræðingurinn, 47 (2), 1977
125