Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1989, Side 12

Náttúrufræðingurinn - 1989, Side 12
nefndin á jafnframt að endurskoða lögin um Náttúrufræðistofnun Islands. Slíkt hús er nú farið að kalla Náttúru- fræðihús, og hafa ýmsir áhugamenn um málið, einkum þó Hið íslenska náttúrufræðifélag og Náttúruverndar- félag Suðvesturlands, unnið því mikið lið og hjálpað til að þoka því áfram undanfarin 3^1 ár, og vonandi tekst nú að koma málinu í höfn. í tilefni af aldarafmælinu verða hin- ir endurbættu sýningarsalir nú opnað- ir formlega; vinnu við salinn á 4. hæð lauk síðastliðið vor en vinnu við salinn á 3. hæð er rétt nýlokið. Vinnan í efri salnum hófst fyrir um það bil fjórum árum og gekk hægt framan af, þannig að það var ekki byrjað að vinna að ráði við sjálfar sýningarnar í skápun- um fyrr en snemma árs 1988. Þegar þeim var lokið var tekið til við neðri salinn sl. vor, og gekk það allt fljótar. En það er óhemju vinna að setja upp sýningar eins og hér hefur verið gert. Þar hefur þurft að þreifa sig áfram með margt stig af stigi, því fyrirmynd- ir voru engar hér á landi. Fyrir bragð- ið hefur þetta orðið nokkuð kostnað- arsamt, en ég vona að allir séu sam- mála um að árangurinn sé glæsilegur. Allan veg og vanda af fyrirkomulagi innréttinga og sýninga hefur Sigurjón Jóhannsson leikmyndateiknari haft. Hann hannaði og teiknaði sýningar- skápa, og gerði tillögur að uppsetn- ingu sýninga í skápana í samráði við starfsmenn stofnunarinnar. Allt yfir- bragð og svipmót salanna er hans verk, frábært verk finnst okkur hér. Við starfsmennirnir höfum svo reynt að aðstoða hann eftir megni, lagt að mörkum þann fræðilega grundvöll sem sýningarnar byggja á og safnað þeim gripum sem sýndir eru. Nokkrir verktakar hafa unnið að ýmsum þáttum verksins. Sviðsmyndir, undir stjórn Birgis Sveinbergssonar, hafa smíðað alla skápa, allar innrétt- ingar og líkön í skápana og aðstoðað við að koma gripum fyrir í þeim. Einnig þeir hafa unnið frábært verk. Af öðrum sem komið hafa við sögu ætla ég aðeins að nefna tvo, Pál Ragn- arsson rafvirkja sem séð hefur um all- ar raflagnir og lýsingu í skápum, og Jón Baldur Hlíðberg, myndlistarmann sem aðstoðað hefur við allt fínna handverk, svo sem líkanasmíð og málningu á því sem næst öllu sem í skápunum er. Öllu þessu fólki þakka ég af alhug fyrir hönd stofnunarinnar. Einnig vil ég þakka fjárveitingarvaldinu og þol- inmóðu starfsfólki stjórnarráðsins, sem oft hefur sýnt okkur mikið um- burðarlyndi. Loks vil ég þakka öllu samstarfsfólki mínu á stofnuninni vel unnin störf, án þrotlausra starfa og ósérhlífni þess hefði þetta aldrei tek- ist. 122

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.