Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 51

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 51
 í öðrum kafla er sagt frá rannsóknum á seinni hluta 18. aldar. Þar koma m.a. við sögu Eggert Ólafsson, Bjarni Pálsson, Ó1159-162afur Olavius, Skúli Magnússon, Nicolai Mohr og Sveinn Pálsson. Skrif þessara manna voru ekki eingöngu um náttúrufræði heldur og um útgerðarhætti og aflabrögð. Fróðlegt er að kynnast í þessum kafla hugmyndum manna um ver- tíðargöngur þorsks við Suðvestur- og Vesturland og ýmsa þá þætti sem taldir voru ráða aflabrögðum. Þriðji kaflinn fjallar um rannsóknir um miðbik 19. aldar. Þar er m.a. sagt frá straumrannsóknum Carls Irmingers, en hann sýndi fram á að hluti hins hlýja Atl- antsstraums fellur norður með vestur- strönd íslands. Þessi hluti Atlantsstraums- ins hefur síðan verið nefndur Irminger- straumur. Fjórði kaflinn greinir frá hafrannsókn- um og skrifum um dýrafræði 1874-1908. Þar er veigamest umfjöllun um Ingolfs- leiðangrana á árunum 1895 og 1896, svo og um Thors-leiðangrana 1903-1908. í Ing- olfs-leiðangrinum fóru í fyrsta sinn fram kerfisbundnar rannsóknir á sjávarhrygg- leysingjum við landið og enn þann dag í dag eru niðurstöður hans með því merk- asta sem skrifað hefur verið um sjávar- hryggleysingja við ísland. Þessi staðreynd leiðir hinsvegar hugann að því hve tak- markaðar rannsóknir hafa í raun átt sér stað á ýmsum hópum hryggleysingja í sjónum hér við land. Á nær eitt hundrað árum hefur vitneskja okkar um marga þá lágdýrahópa sem fjallað var um í niður- stöðum Ingolfs-leiðangursins lítið aukist. Leiðöngrunum á Thor var stjórnað af dýrafræðingnum Johannes Schmidt og náðu þær til rannsókna á sjónum, plöntu- og dýrasvifi og úrbreiðslu og mergðar fiskseiða. Niðurstöður þeirra birtust í fjölda ritgerða sem eru grundvöllur að þeirri þekkingu sem við búum við í dag um lífið í sjónum og nytjastofnana um- hverfis landið. í fimmta kafla segir Jón frá sjómæling- um við Island og gerð sjókorta. Þetta er stysti kafli bókarinnar, en í honum er sagt frá sjómælingaleiðöngrum á sautjándu, átjándu og nítjándu öld og fjallað um sjó- kort sem síðan voru unnin upp úr niður- stöðum þeirra. Upplagt hefði mér þótt að birta hér með myndir af einhverjum þess- ara gömlu sjókorta og jafnvel sýna mun á þeim og öðrum nýrri. Sjötti kaflinn ber heitið „Norskar haf- rannsóknir 1859-1914“. Þar er sagt frá upphafi fiskirannsókna við Noreg og sjó- rannsóknum í Noregshafi. Um þessar rannsóknir er fjallað í bókinni vegna þess að þær fóru að hluta til fram í hafinu við Island og eins höfðu niðurstöður þeirra mikil áhrif á rannsóknir annarra þjóða á þessum tíma. I sjöunda kafla er fjallað um hið merka brautryðjandastarf Bjarna Sæmundssonar en hann er í raun sá sem lagði grundvöll- inn að íslenskum rannsóknum á sviði haf- og sjávarlíffræði. Bjarni var bundinn við kennslu stóran hluta starfsævi sinnar en þrátt fyrir það eru afköst hans á sviði rannsókna og ritstarfa með ólíkindum. Er Bjarni hóf rannsóknir sínar vissi almenn- ingur, sjómenn og embættismenn enn lítið um lífshætti nytjafiska og lífið í sjónum og sem brautryðjanda kom það í hans hlut að vinna íslenskum fiskirannsóknum traust og virðingu. Framsýni og hugsjónir Bjarna koma fram í tillögum hans frá 1905 um það að hverju beri að stefna á sviði ís- lenskra haf- og fiskirannsókna. Þar nefnir hann mörg atriði sem síðar urðu mikilvæg rannsóknarverkefni íslenskra fiskifræð- inga. í áttunda kafla er tjallað um rannsóknir og skrif um botnþörunga. Jón rekur skril' 1. mynd. Ein af mörgum áhugaverðum myndum sem prýða Hafrannsóknir við ísland. Myndin er úr handriti Jóns lærða þar sem hann tjallar um sandlægjuna. Jón Jónsson get- ur um það að talið er að hér sé um að ræða sömu tegund og menn í dag kalla gráhval, Eschrichtius gibbosus. Hún finnst nú einungis í Kyrrahafinu, en heimildir eru um hana við strendur Evrópu á fyrstu öldum eftir Krists burð og við austurströnd Noröur-Amer- íku í byrjun 18. aldar. Ljósm. ívar Brynjólfsson. 161
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.