Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 14

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 14
Þóra Ellen Þórhallsdóttir, for- maður Hins íslenska náttúru- fræðifélags sæmir Steindór Steindórsson frá Hlöðum, grasafræðing, fyrrum skóla- meistara Menntaskólans á Akureyri og heiðursfélaga fé- lagsins, barmmerki á afmælis- hátíðinni að Hótel Loftleið- um. Steindór hefur verið fé- lagi í H.Í.N. síðan 1922, lengur en nokkur annar núlif- andi félagi. Hann hefur verið afkastamikill rithöfundur á löngum ferli sínum. Ljósm. Skúli Þór Magnússon. NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ Aðaltilgangurinn með stofnun fé- lagsins var, eins og segir í 2. grein laga félagsins, að „koma upp sem full- komnustu náttúrugripasafni á Islandi sem sé eign félagsins og geymt í Reykjavík“. Félagar hófust þegar handa um söfnun náttúrugripa og var safnið fyrst opnað almenningi árið 1895, sex árum eftir stofnun félagsins. Benedikt Gröndal var fyrsti formaður félagsins og vann hann þrekvirki við að koma safninu upp. Ekki er hægt að minnast á safnið án þess að geta starfa Bjarna Sæmundssonar. Hann var for- maður félagsins í 35 ár og umsjónar- maður safnsins allan þann tíma og var safnið að verulegu leyti hans verk. Bjarni vann ötullega við að bæta og auka við safnið. Miklu safnaði hann sjálfur en var auk þess í sambandi við menn úti um land sem söfnuðu og sendu honum náttúrugripi. Þótt nátt- úrufræðingar hafi eðlilega átt stærstan þátt í umsjón félagssafnsins, lögðu áhugamenn því alltaf mikið til svo sem sjá má á gjafalistum safnsins. Bændur og sjómenn söfnuðu mörgum gripum, íslendingar sem lagt höfðu land undir fót til fjarlægra heimshluta sendu gjafir og einnig ánöfnuðu félag- ar náttúrugripasafninu sín sérsöfn. Náttúrugripasafn félagsins var gott safn á þess tíma mælikvarða. Meðan félagið átti það og rak, var aðsókn að því alltaf góð. Frá 1925-1940, var t.d. aðsókn á bilinu 8.000-12.000 manns á ári, þrátt fyrir stuttan opnunartíma. Þetta samsvarar því að árlega hafi um þriðji hver Reykvíkingur heimsótt safnið. Metnaður félagsins náði ekki aðeins til sýningarsafns fyrir almenn- ing, heldur var það alltaf von þess að í safninu yrði íslenskum náttúrufræð- ingum sköpuð aðstaða til rannsókna. Sú vitneskja sem fékkst með safnstarf- inu lagði líka verulegan skerf til vís- indalegrar þekkingar á náttúru ís- lands. Á fimmta áratugnum urðu þáttaskil í sögu félagsins. Frá árinu 1895 hafði félagið rekið náttúrugripasafnið eitt, þó með nokkrum stuðningi ríkisins. Aldrei var tekinn aðgangseyrir í safn- ið og þegar það er haft í huga að fé- lagar voru nær allt til þessa tíma innan við 200, verður það að teljast með ólíkindum hvernig þessu litla og fá- 124
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.