Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 20

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 20
1942 var leitað eftir því við Háskóla íslands að hann tæki að sér að byggja hús fyrir safnið og var lögunum um happdrætti háskólans breytt þannig að einkaleyfið var bundið því skilyrði að háskólinn byggði yfir safnið. Voru gerðar samþykktir um þetta í háskóla- ráði og var ekkert að vanbúnaði að hefja framkvæmdir 1948 er fjárhags- ráð bannaði byggingar fyrir safnið. Og svo hélt enn lengi fram og 1957 var ákveðið að kaupa það húsnæði sem opnaði okkur nýjan sýningarsal í gær. Þessi vegferð hefur því gengið grát- lega hægt að ekki sé fastar að orði kveðið. Því veldur margt. Ekki efna- leysi þjóðfélagsins því aldrei hefur verið meira byggt en á þessum áratug. Ég hygg að aðalástæðan sé sú að menn hafa ekki skilið almennt og skilja kannski ekki enn að náttúru- fræðisafn er ekki aðeins hús með upp- stoppuðum fuglum: Það er gluggi að náttúrunni og náttúrulögmálunum og það er til vansa að þjóð jafn rík og við höfum verið skuli ekki hafa eignast al- mennilegt safn, ekki síst vegna þess að við lifum í svo nánu sambýli við náttúruna að við verðum að skilja hana og kunna hana. Hitt verður líka að viðurkenna því miður að í mála- fylgju hefur skort samheldni náttúru- fræðinga, en hún getur ein dugað til þess að koma málum af þessu tagi svo ofarlega á forgangslista stjórnvalda að ekki verði undan vikist. En stjórn Hins íslenska náttúru- fræðifélags tók á þessu máli 1983 og hvatti til dáða. A hennar vegum varð til sérstakur hópur til að sinna málinu, það er uppbyggingu náttúrufræðisafns og Náttúruverndarfélag Suðvestur- lands undir forystu Einars Egilssonar hvatti til dáða. Þetta starf áhugamannanna leiddi til þess að vorið 1985 var lögð fram til- laga til þingsályktunar á alþingi - flutt af 10 þingmönnum úr öllum flokkum og forgöngumaður málsins og fyrsti flutningsmaður var Hjörleifur Gutt- ormsson. Tillagan hljóðaði svo: „Alþingi ályktar að skora á ríkis- stjórnina að hraða, m.a. í samráði við hóp áhugamanna og Náttúru- fræðistofnun fslands, undirbúningi að byggingu yfir nútímalegt nátt- úrufræðisafn á höfuðborgarsvæð- inu. Byggingarundirbúningur og fjár- framlög til framkvæmda verði við það miðuð að unnt verði að opna safnið almenningi á árinu 1989 þeg- ar 100 ár verða liðin frá stofnun Hins íslenska náttúrufræðifélags og náttúrugripasafns á þess vegum.“ í framhaldi af þessu skipaði Ragn- hildur Helgadóttir menntamálaráð- herra nefnd til að vinna að málinu og vann nefndin margt vel en ekki tókst full samstaða um málið í nefndinni. Sl. vor skipaði ég svo nefnd til að taka á málinu á ný og í nýju samhengi. Formaður nefndarinnar er Hjörleifur Guttormsson en aðrir í nefndinni eru Eyþór Einarsson, forstöðumaður Náttúrufræðistofnunar íslands, Jó- hann Pálsson, grasafræðingur, til- nefndur af Reykjavíkurborg, Kristín Einarsdóttir, alþingismaður, Svein- björn Björnsson, prófessor, tilnefndur af Háskóla íslands, Þóra Ellen Þór- hallsdóttir, prófessor, formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags og Þórunn J. Hafstein deildarstjóri í mennta- málaráðuneytinu. Með nefndinni hafa þau starfað Hrafnkell Thorlacíus arki- tekt og Kristín Arnadóttir sem hefur verið ritari nefndarinnar. Hafa þau unnið mikið og gott starf á stuttum tíma og cru þeim hér með færðar sér- stakar þakkir fyrir framlag þeirra. Nefndin hefur skilað áfangaskýrslu þar sem tekið er annars vegar á laga-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.