Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1989, Síða 45

Náttúrufræðingurinn - 1989, Síða 45
9. mynd. Jarðvegsveggur í vegarkanti á Izu-Oshima. Hér má sjá fjölmörg gjóskulög frá síðustu 10.000 árum og mjög áberandi mislægi í jarðveginum. Af breidd vegarins má ráða í þykktina á jarðveginum. Soil profile with numerous tephra layers from the last 10,000 years in Izu-Oshima. Ljósm. photo Páll Einarsson. er minni keila, um 120 m há sem situr inni í öskju sem myndast hefur í meg- infjallið. Askjan er um 3-4 km í þver- mál með upp undir 100 m háa mis- gengjaveggi og opin út mót austri. Um 30 gjallkeilur, fallgígar og sprengigígar raða sér á þrjá arma sem ganga út frá öskjunni til NNV, SSA og NA. Oshima hefur nær eingöngu gosið basískum kvikum. Mihara-yama varð að mestu leyti til í miklum kviku- strókum á árunum 1777-78 í stórgosi sem varaði til 1792. Hinn 15. nóvem- ber árið 1986 hófst mikið gos í Mi- hara-yama. Þetta var mikið basaltgos og stóðu kvikustrókarnir í upphafi 500 m upp í loftið og flæddi hraun út yfir öskjubotninn og byrjaði að renna út úr henni. Hinn 21. nóvember opnaðist svo sprunga yfir öskjubotninn og risu á henni kvikustrókar allt að 1600 m háir. Ur þeim rigndi gjalli, ösku og nornahárum og hraun flóði út yfir um- hverfið. Gufusprengingar áttu sér stað á sprungunum og olli það aukinni tæt- ingu kvikunnar og miklum gosmekki. Hann náði meira en 10 km hæð. Síðan fóru sprungur að opnast utan við öskj- una, einkum til norðurs og hraun að renna í átt að stærstu byggðinni á eynni. Hraunið stöðvaðist um 300 m frá Oshima eldfjallastöðinni sem rekin er af Háskólanum í Tokyo. Gosið hélt áfram fram yfir miðjan desember. Gos tók sig síðan upp aftur hinn 16. nóvember 1987, einu ári og einum degi eftir upphaf fyrra gossins. Það varaði nokkra daga. Um nóttina milli hins 21. og 22. nóvember 1986 eftir að gossprungan hafði náð mestri lengd 155

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.