Náttúrufræðingurinn - 1989, Qupperneq 53
Sigurður Steinþórsson
Ritfregnir
Tvær nýjar bækur um steina
INNGANGUR
Nú eru liðin ein 112 ár síðan Steinafrœði
og jarðarfrœði Benedikts Gröndal kom út
(1878), 128 bls. með 32 myndum af krist-
öllum og kristalkerfum, sem Benedikt
teiknaði sjálfur. í bók Gröndals er megin-
efnið kristalla- og steindafræði, auk all-
mikillar „grjótfræði", gagnstætt þeim
kennslubókum um jarðfræði sem síðan
hafa verið gefnar út, því þar skipa þessar
greinar allar lágan sess (Guðm. G. Bárð-
arson, Þorleifur Einarsson, Trausti Ein-
arsson, Ari Trausti Guðmundsson). Það
var því ekki vonum fyrr, að fyrir jólin 1988
komu út tvær veglegar litmyndabækur um
steina, íslenskir steinar og Steinaríkið.
Báðar eru einkum ætlaðar áhugamönnunt
um steinasöfnun, og nálgast því hvorug
hina fornu kennslubók Gröndals að fræði-
legu innihaldi. Að liinu leytinu hafa nýju
bækurnar að sjálfsögðu marga hluti fram-
yfir, ekki sízt þá kosti sem Ijósmynda- og
litprentunartækni síðustu tíma býður upp
á.
Þótt báðar fjalli bækurnar að nafni til
um sama efnið, eru þær svo ólíkar að inni-
haldi og efnistökum, að tæplega er hægt
að bera þær saman. Önnur hefur jörðina
alla að viðfangsefni, með sínum marg-
breytilegu steindum, bergtegundum og
steingervingum; hin einbeitir sér að hinu
sértæka steinaríki íslands. En það er ein-
mitt ntjög nauðsynlegt, því enda þótt Is-
land sé með grýttustu löndum fer minna
fyrir fjölbreytni í grjót- og steintegundum.
Hins vegar eru vissir llokkar steinda, eink-
um zeólítar, sérlega fjölbreyttir, og verða
þeim ekki gerð viðhlítandi skil nema í sér-
hæfðum bókum, eða þá í risavaxinni al-
mennri bók.
ÍSLENSKIR STEINAR
íslenskir steinar, eftir Axel Kaaber, Ein-
ar Gunnlaugsson og Kristján Sæmunds-
son, með Ijósmyndum eftir Grétar Eiríks-
son. Bókaútg. Bjallan, Rvk. 1988.
„Allt í heimi hér stefnir til hins bezta,"
sagði Altúnga heimspekingur, og ennþá
ein sönnun þessa er bókin íslenskir stein-
ar. Því mér er kunnugt um það, að eigend-
ur Bjöllunnar höfðu lengi haft á því áhuga
að láta semja steinabók, en ekki hitt á
heppilegan höfund. Sú bið reyndist hins
vegar af hinu góða, því yfirleitt hefur tek-
izt mjög vel til um bókina. Höfundarnir
þrír sameina margvíslega kunnáttu og
reynslu: Axel Kaaber er áhugamaður sem
á mikið og gott steinasafn, og munu marg-
ar ljósmyndanna vera af steinum úr safni
hans, auk þess sem hann leggur til ýmis
þekkingaratriði fyrir safnara. Kristján og
Einar eru jarðfræðingar með víðfeðma
þekkingu á jarðfræði íslands og reynslu í
jarðhitafræðum, en flestar þær steindir
sem safnarar sækjast eftir myndast einmitt
í tengslum við jarðhita, og leggja þeir til
hinn fræðilega þátt.
í upphafi bókar er stutt yfirlit yfir jarð-
fræði Islands, og fylgir því einfaldað kort
sem sýnir jarðfræðina frá sjónarhóli
steinasafnara - ummyndun og holufyllingu
bergsins. I kaflanum er getið urn „plötu-
kenningu" og „plötuskrið"; Þorsteinn
heitinn Valdimarsson skáld benti fyrir
löngu á betri orð yfir hugtök þessi: fleka-
Náttúrufræöingurinn 59 (3), bls. 163-166, 1989.
163