Fréttablaðið - 06.06.2009, Page 38
4 matur
Þorkell Andrésson og Hildur Úa Einarsdóttir deila áhuga á matargerð. Fallega dekkað borð að hætti Marentzu.
Ítalskt focaccia-brauð með
mozzarella er bæði bragð-
gott og auðvelt að gera.
Sæmundur
Kristjánsson og
Marentza Poulsen
hafa unnið mikið
saman í gegnum
tíðina. Bæði
kunna þau vel að
búa til góða
veislu.
FRAMHALD AF FORSÍÐU
LAX MARENTZU
með sítrónukartöflu purée
og kryddjurtapestó
LAX
1 flak af ferskum laxi, bein-
hreinsað og flakað.
Laxinn kryddaður með salti,
timían og örlitlum sítrónusafa.
Bakaður í um það bil sex mínút-
ur við 160 gráður.
SÍTRÓNUKARTÖFLU PURÉE
300 g kartöflur
25 g smjör
25 ml rjómi
1 sítróna
Kartöflurnar soðnar, skrældar
og maukaðar heitar. Smjörið
og rjóminn hitað saman í potti
og kartöflumaukinu hrært út í.
Nokkrir dropar af sítrónusafa
og smá rasp af berki sítrónunn-
ar sett út í maukið, rétt áður en
rétturinn er borinn fram.
DILL-PESTÓ
100 g dill
100 g ruccola
50 g cashew-hnetur
50 g parmesan ostur rifin
30 ml ólífuolía
Allt sett í matvinnsluvél og gróf-
lega unnið saman i vélinni. Salt
og pipar sett í restina.
GEITAOSTUR HILDAR
á tómatólífubrauði með
tapenade
TÓMATÓLÍFUBRAUÐ
300 ml vatn
3 g sykur
5 g salt
9 g olía
400 g hveiti
100 g ólífur
100 g sól-
þurk aðir
tómatar
Öllu blandað
saman, hnoðað
og látið hefast í hálf-
tíma og bakað í 25 mínútur við
160 gráður. Skorið í sneiðar og
grillað á heitri pönnu.
GEITAOSTUR
Góður mjúkur geitaostur frá Jóa
í ostabúðinni, skorinn í þuml-
ungsþykkar sneiðar, settur í
rasp og bakaður á háum hita í
ofni í 3 til 4 mínútur.
ÓLÍFUMAUK
100 g grænar eða svartar ólíf-
ur
50 g ansjósur
5 g hvítlaukur
30 ml ólífuolía
Allt maukað og salt og pipar
bætt út í.
UPPSKRIFTIR AÐ LJÓMANDI SUMARVEISLU
A M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M