Fréttablaðið - 06.06.2009, Qupperneq 60
6 matur
FERSKUR
SUMARDRYKKUR
2 límónur
½ l engiferöl
½ l sódavatn
ísmolar
Ferskur og einfaldur
drykkur, góður með
léttum réttum og á
heitum dögum.
Skerið límónu í grófa
bita, átta stykki úr
einni, kreistið og setj-
ið í könnu. Fyllið með
ísmolum og hellið
engiferöli og sóda-
vatni yfir. Hrærið í með
skeið og þá er drykk-
urinn tilbúinn.
ÍSKAFFI
1 espresso
2 cl. karamellusíróp
ísmolar
mjólk
þeyttur rjómi
Góður á heitum
dögum og ávallt.
Setjið nóg af ísmolum
í hátt glas, um það bil
35 cl. Hellið espresso
og sírópi yfir og hrær-
ið. Fyllið glasið með
kaldri mjólk og setjið
þeyttan rjóma yfir.
TÓMATBEIKON-
RIST
2 stórir tómatar
4 sneiðar beikon
1 hvítlauksrif
óðalsostur
1 þykk brauðsneið
(ég nota maltbrauð
bakað á staðnum,
líka gott að nota súr-
brauð, speltbrauð
eða landbrauð).
Salt, pipar, ólífuolía
og ferskt timjan.
Léttur og góður
brauðréttur, tiltölulega
einfaldur að gera.
Ristið brauðið og
léttsteikið beikon-
ið. Sneiðið tómat-
ana gróft, um það
bil fjórar sneið-
ar hvern tómat.
Nuddið hvítlaukn-
um á brauðið og gefið
aðeins ólífuolíu yfir.
Raðið tómatsneiðun-
um á brauðið, kryddið
vel með salti og pipar,
leggið væna sneið
af osti yfir og bræð-
ið undir grilli eða inni
í ofni. Hellið ólífu-
olíu aftur yfir, stráið
svo svörtum pipar og
fersku timjan yfir.
TÓMATBEIKONRIST OG TVEIR SVALANDI SUMARDRYKKIR
Brynjólfur Garðarsson hefur nýverið tekið við stöðu yfirmatreiðslumeistara á
veitinga- og kaffihúsinu Portinu
í Kringlunni, eftir að hafa verið
búsettur í Danmörku um árabil
þar sem hann rak meðal annars
Laundromat Café ásamt Friðriki
Weisshappel. Blaðamaður fékk að
skyggnast í eldhúsið hjá Brynj-
ólfi þar sem boðið var upp á tómat-
beikon rist og tvo svalandi drykki.
„Við drekkum alltaf svona í
eldhúsinu þegar heitt er í veðri,“
útskýrir Brynjólfur, með ískaldan
engiferöldrykk í hönd. Segir hann
góðan, ódýran og sáraeinfaldan í
gerð; blanda af sódavatni og engi-
feröli eða orkudrykk, ísmolar og
slatti af límónu séu það eina sem
til þurfi. „Þetta eru alls engin
stórinnkaup,“ bætir hann brosandi
við.
Hann leggur einnig til hugmynd
að ljúffengu ískaffi sem auðvelt er
að útbúa heima. „Þetta er ekkert
venjulegt ískaffi hrært upp með ís,
heldur í sínu einfaldasta formi þar
sem ísmolar eru látnir kæla niður
espressóinn. Smá sýróp er svo sett
út í til að gera kaffið sætara, kaldri
mjólk bætt við og þeyttur rjóminn
ofan á. Vænn skammtur af þessu
er ein besta aðferð sem ég veit um
til að slökkva þorstann.“
Þá er komið að aðalsmerki stað-
arins, brauðinu, sem Brynjólf-
ur framreiðir stoltur í bragði.
„Ég rista brauðið, sem er bakað
á staðnum, nudda hvítlauksgeira
ofan í það, helli olíu yfir, bæti
tómatsneiðum ofan á og grilluðu
beikoni. Set svo vel af osti, salti
og pipar, smá timjan og svartan
pipar. Hráefnið verður að vera
ferskt. Það er mjög mikilvægt.
Annars er þetta nokkuð sem allir
geta gert, en er alveg ómótstæði-
lega gott.“ - rve, ve
Einfalt og
ómótstæðu-
legt ískaffi.
Ferskleikinn í fyri
Þessi drykkur er ein stak lega
svalandi og gott að hafa við
höndina þegar sólin skín.
Brauð af ýmsu tagi
er aðalsmerki
Portsins í Kringlunni.
Brynjólfur Garðarsson tók nýverið til starfa á veitingastaðnum Portinu eftir að hafa
rekið Laundromat Café í Danmörku við góðan orðstír. Hann sviptir hér hulunni að
einu aðalsmerki staðarins auk þess sem hann hrærir saman tvo einfalda drykki.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
A D
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki