Fréttablaðið - 24.06.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 24.06.2009, Qupperneq 2
2 24. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR Árni, munuð þið selja M&M í M&M-búðinni? „Við gefum alltaf krökkunum M&M á Öskudeginum. Það hefur verið ein- kenni Máls og menningar í mörg ár.“ Stofna á bókabúðina Mál og menningu í húsnæði Bókabúðar Máls og menning- ar. Bókabúðin flytur í annað húsnæði, líklega á Laugavegi. Tvær M&M-búðir verða því í miðbænum. Árni Einarsson er stjórnarformaður Bókmenntafélagsins Máls og menningar. STJÓRNMÁL Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokksins í Kópavogi, segir framtíð meiri- hlutasamstarfs ráðast í dag. Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að bregðast við skilyrðum sem fulltrúaráðs- fundur Framsóknarflokks setti á mánudag. Meðal þeirra var að nýr bæjarstjóri taki við í dag og sitji út kjörtímabilið. Ætli Gunnar sér að snúa aftur sem bæjarfulltrúi, verði að semja um samstarf flokkanna að nýju. Ómar segir að þá sé allt undir og hans túlkun sé að fulltrúaráðið telji að þá þurfi að skoða allar stöður upp á nýtt. Gunnar segist munu snúa aftur til fyrri starfa í bæjarstjórn og bæjarráði að rannsókn á málefnum stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs lok- inni. Í haust fari hann þó í hnéaðgerð sem gæti haldið honum eitthvað frá störfum. Gunnar segir fólkið hafa kosið sig til starfa og því sé eðlilegt að hann snúi aftur á ný. Gunnar vill lítið tjá sig um kröfu samstarfsflokksins. „Ég segi ekkert um það, menn hljóta að leppa sig saman í þessu eins og í öðrum málum.“ Ómar sagðist í gærkvöldi ekki hafa rætt við Gunnar eftir fund fulltrúaráðsins. Hann hefði hins vegar verið í góðu sambandi við Gunnstein og það réðist af viðbrögðum hans og Sjálfstæðisflokks við skilyrðum Framsóknar hvort grundvöllur væri til áframhaldandi samstarfs. Það ætti við um öll skil- yrði, líka hvað varðaði endurkomu Gunnars. - kóp Gunnar Birgisson mun snúa aftur sem bæjarfulltrúi að lokinni rannsókn: Framtíð samstarfs ræðst í dag FYRRVERANDI SAMHERJAR Ómar segir afturhvarf Gunnars í bæjar stjórn kalla á endurskoðun allra samninga. Gunnar segist munu snúa aftur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL ÍÞRÓTTIR Talsmaður Baracks Obama telur mjög líklegt að Bandaríkjaforsetinn verði við- staddur opnunarhátíð Heimsmeist- aramótsins (HM) í knattspyrnu, sem fram fer í Suður-Afríku næsta sumar. Það yrði í fyrsta skipti í sextán ár sem forseti Banda- ríkjanna yrði viðstaddur opnun á mestu knattspyrnu- keppni heims, eða síðan Bill Clinton vígði HM í Bandaríkjunum árið 1994. Sepp Blatter, forseti Alþjóða- knattspyrnusambandsins (FIFA), sagðist á mánudag hafa boðið Obama á hátíðina og að forset- inn hefði þáð boðið. Obama hefur í viðtölum talað um aðdáun sína á knattspyrnu og að hann horfi oft á leiki úr ensku úrvalsdeildinni í sjónvarpi. - kg Forseta boðið á stórviðburð: Obama á HM í knattspyrnu BARACK OBAMA EFNAHAGSMÁL Sérfræðingar á fjár- málamarkaði gagnrýna stjórnar- frumvarp sem liggur fyrir efna- hags- og skattanefnd Alþingis og kveður á um fimmtán prósenta skatt á vaxtagreiðslur til erlendra aðila. Skatturinn fellur á vexti lána sem erlendir lánardrottnar hafa veitt íslenskum fyrirtækjum. Viðmælendur Markaðarins segja þetta senda erlendum lánardrottn- um röng skilaboð og geta reynst íslenskum fyrirtækjum stór- hættuleg við núverandi aðstæður. Þau vanti sárlega fjármagn og séu mörg tæknilega gjaldþrota. Þeir óttast að fari frumvarpið óbreytt í gegnum nefndina megi reikna með að skattaálögurnar leggist ofan á lán til fyrirtækja hér og innlendir aðilar beri á endanum byrðarnar. Þá segja aðrir hættu á að erlend fjármálafyrirtæki snúi einfaldlega baki við íslenskum fyrirtækjum, sem séu rúin trausti á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. „Við erum að skoða málið. Gagn- rýnin er eitt af þeim atriðum sem við munum skoða fyrir aðra umræðu málsins,“ segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar og kveður niður- stöðu fást í málinu fyrir vikulok- in. - jab / sjá Markaðinn Forsvarsmenn í atvinnulífinu segja hættu stafa af skattafrumvarpi stjórnvalda: Röng skilaboð til lánardrottna HAMARSHÖGGUM FÆKKAR Fjármála- sérfræðingar óttast að skattur sem eigi að leggjast á erlend fjármálafyrirtæki skili sér í auknum vaxtaálögum íslenskra fyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR MYNDLIST Jónsmessan verður hald- in hátíðleg með myndlistarsýningu í Garðabæ í kvöld. Sýningin stend- ur frá klukkan 20 til miðnættis við Strandstíginn í Sjálandinu. Hugmyndina að Jónsmessusýn- ingunni á Laufey Jensdóttir mynd- listarmaður. Í tikynningu segir að í samstarfi við bæjaryfirvöld, tónlistarfólk, skáta og fleiri aðila verði blásið til fagnaðar í kvöld. Þar geti gestir og gangandi notið samhliða menningar, útivistar og kynngikrafts Gálgahraunsins sem með öllum sínum kynjamyndum og krafti hafi verið mörgum upp- spretta frjórra hugmynda, verka og gálgahúmors. - kg Sýning í Garðabæ: Myndlist á Jónsmessunni DÓMSMÁL Tæplega þrítugur maður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að hóta manni og tíu ára dóttur hans. Maðurinn hafði áður hlotið dóm fyrir líkamsár- ás eftir að hann við annan mann réðst á föðurinn, kýldi hann og reif eyrnalokk úr eyra hans. Þegar árásarmálið var komið í rannsókn hringdi árásarmaðurinn í þann sem hann hafði misþyrmt þá og hótaði honum, léti hann málið ekki niður falla. Hann hótaði einnig tíu ára dóttur mannsins að pabbi hennar myndi koma alblóð- ugur heim myndi hún ekki sækja hann í símann. Líkamsárásardóm- urinn var tekinn upp og refsing dæmd í einu lagi. - jss Dæmdur í fangelsi: Hótaði föður og ungri dóttur VIÐSKIPTI Náist ekki samkomulag við kröfuhafa bankanna um verð fyrir þær eignir sem færðar voru yfir í þá nýju er ekki útilokað að þeim verði afhentir einn eða fleiri þeirra í einu lagi. Ekki verða gefnir frekari frestir til að ná samkomulagi en sá sem síðast var gefinn til 17. næsta mán- aðar, að sögn Gunnars Þ. Ander- sen, forstjóra FME. Náist ekki samkomulag má búast við að FME taki einhliða ákvörðun um upp- gjörið. Bæði Gunnar og Steingrím- ur J. Sigfússon fjármálaráðherra segja enn allar leiðir opnar hvað varðar uppgjör við kröfuhafana. Þar á meðal að kröfuhafarnir eign- ist bankana í einhverri mynd, eða að opnað verði á endurmat á virði yfirfærðra eigna þegar frá líði. - óká / sjá Markaðinn Viðræður við kröfuhafa: Óvíst að tíma- áætlunin haldi FERÐIR Íslensk ungmenni virðast ekki ætla að láta efnahagsþreng- ingar hafa áhrif á ferðalög til útlanda í sumar. Þetta segja forsvarsmenn þriggja fyrir- tækja sem með öðru bjóða upp á sjálfboðastörf víða um heim. „Bankahrunið hefur ekki hindrað ungt fólk. Mér finnst fleiri sækja út núna en fyrir ári þegar við byrjuðum með verkefnið,“ segir Kristrún Sveins- dóttir, verkefnastjóri hjá Nínukoti, einu fyrirtækjanna þriggja. Meðal vinsælla áfangastaða má nefna Afríku, Suður-Ameríku og Norður- löndin. - mmf / sjá Allt í miðju blaðsins Íslensk ungmenni: Ferðast áfram til útlanda KRISTRÚN SVEINSDÓTTIR DÓMSMÁL Hannes Smárason og félög nátengd honum hafa stund- að margvísleg viðskipti sem kunna að vera refsiverð, að því er fram kemur í húsleitarúrskurði Héraðs- dóms Reykjavíkur. Héraðsdómur úrskurðaði í gær að húsleit sem gerð var í eignum Hannesar og á lögmannsstofunni Logos hefði verið lögmæt. Hannes hafði farið fram á það að leitin yrði dæmd ólögmæt og öllum gögnum sem tekin voru í húsleitinni yrði skil- að. Meðal þess sem verið er að skoða eru kaup FL Group á flugfélaginu Sterling árið 2005. Grunur leikur á að auðgunarbrot hafi verið framið við kaupin. Efnahagsbrotadeild lög- reglu telur að kaupin hafi valdið FL Group verulegu fjárhagslegu tjóni, þar sem flugfélagið kunni að hafa verið keypt á yfirverði. Þá leikur grunur á að Hannes hafi brotið hlutafélagalög með lánveitingu FL Group til hans eða annarra tengdra honum upp á rúmar 46 milljónir Bandaríkjadala. Einnig er verið að skoða greiðslur einkahlutafélags- ins FI fjárfestinga til FL Group vegna einkakostnaðar Hannesar. Um greiðslur upp á fimmtíu milljónir króna eru að ræða. Í bók- haldi félagsins koma færslur fram merktar „flug“, „prívat vegna US“, „úttektir“, „veiðileiðsögn“ og „bíó- miðar HS“. Þá eru til rannsóknar kaup og sala á fasteignum sem einkahluta- félagið Fjölnisvegur 9, í eigu Hann- esar, seldi honum og sambýliskonu hans með tapi árið 2007. Fasteign- irnar eru við Fjölnisveg 9 og 11 þar sem húsleitir voru gerðar. Einkahlutafélagið gaf upp leigu- tekjur upp á rúmar níu milljónir árið 2006 og rúmar sex milljónir árið 2007. Í úrskurðinum kemur fram að leigutekjurnar séu lágar og megi því ætla að kaup félagsins á fasteigum hafi ekki verið gerð í ábataskyni heldur sé hugsanlega um málamyndagerning að ræða. Félagið átti einnig og seldi fast- eign við Naustabryggju 18, en það var gert með talsverðum hagnaði. Fram kemur í húsleitarúrskurði að á þeim tíma hafi fasteignaverð í Reykjavík hækkað umtalsvert. Þar kemur jafnframt fram að rök- studdur grunur sé um skattsvik. Einnig er verið að rannsaka einkahlutafélagið Hlíðasmára 6 ehf. og eignarhaldsfélögin Sveip ehf. og EO eignarhaldsfélagið ehf. thorunn@frettabladid.is Margvísleg viðskipti mögulega refsiverð Grunur leikur á að Hannes Smárason og félög honum nátengd hafi framið auðgunarbrot, skattsvik og brot á hlutafélagalögum á árunum 2005 til 2007. Héraðsdómur úrskurðaði í gær húsleit í eignum Hannesar og Logos lögmæta. FJÖLNISVEGUR 9 Meðal þess sem verið er að rannsaka er sala á Fjölnisvegi 9 og 11 til Hannesar og sam- býliskonu hans. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó SA SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.