Fréttablaðið - 24.06.2009, Blaðsíða 6
6 24. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
www.ms.is/gottimatinn
nýtt!
hrein jógúr
t
í ½ l umbúð
um
í morgunve
rðar-
eða sósuská
lina
alveg hreint frábær!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-0
1
9
2
Nauðganir í fangelsi
Tuttugu kvenföngum var nauðgað
eftir misheppnaða flóttatilraun karl-
fanga í fangelsi í Kongó á mánudag.
Mennirnir voru flestir af dauðadeild
og þegar þeim mistókst flóttinn bru-
tust þeir inn á kvennadeildina.
KONGÓ
Sveltu dóttur sína í hel
Foreldrar sjö ára gamallar einhverfrar
stúlku í Ástralíu hafa verið dæmdir
fyrir að hafa svelt hana í hel. Fram
kom fyrir dómi að læknar hefðu
aldrei séð jafn alvarlegt dæmi um
vanrækslu og vannæringu.
ÁSTRALÍA
FÓLK „Ég er mjög ánægður með þennan árangur.
Þetta er alveg frábært,“ segir Kári Már Reynisson,
sautján ára nemandi við Menntaskólann Hraðbraut.
Kári er höfundur verkefnisins „Líkan að gervitaug“
sem bar sigur úr býtum í Landskeppni ungra vísinda-
manna sem fram fór við Háskóla Íslands á dögunum.
Verðlaunaafhending fór fram í Háskólanum í gær.
Auk verðlaunafjár og -skjals verður Kári fulltrúi
Íslands í Evrópukeppni ungra vísindamanna í París
í september. Þar keppir Kári við unga vísindamenn
frá fjörutíu löndum í Evrópu, Ameríku og Asíu. „Ég á
jafn góða möguleika á sigri þar og allir aðrir,“ segir
Kári.
Kári var aðeins tólf ára gamall þegar áhuginn á
byggingu gervitaugar kviknaði. „Ég var mikið að
garfa í þessu sem barn og taugafræðin kveikti sér-
staklega í mér. Ég uppgötvaði að við höfum engan
búnað til að hjálpa þeim sem verða fyrir alvarlegum
taugaskemmdum. Og svo hefur þetta þróast áfram
hjá mér.“
Kári er að ljúka stúdentsprófi við Menntaskólann
Hraðbraut og stefnir á nám í Háskóla Íslands í haust.
„Ég gæti farið í líffræði eða lífefnafræði eða jafnvel
verkfræði. Það er í raun óráðið hvað ég geri,“ segir
vísindamaðurinn ungi að lokum. - kg
Kári Már Reynisson sigraði í Landskeppni ungra vísindamanna:
Tólf ára er áhuginn kviknaði
LÍKAN AÐ GERVITAUG Kári Már tók á móti verðlaunum í Lands-
keppni ungra vísindamanna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NÁTTÚRA Umhverfisstofnun veitti í
gær ORF líftækni leyfi til að rækta
erfðabreytt bygg utandyra. Leyfið
er þó háð skilyrðum eins og því að
Umhverfisstofnun muni fá að hafa
eftirlit með ræktuninni og að rækt-
unarsvæðið verði innan girðinga
sem og varðbelta.
„Við teljum þessi skilyrði alveg
sjálfsögð og munum auðvitað
fylgja þeim í einu og öllu,“ segir
Björn Lárus Örvar, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins. Hann segir
ennfremur að þegar verði hafist
handa við að sá, þó ljóst megi vera
að ekki fáist uppskera í ár. Bændur
sem rækta bygg hér á landi hefja
yfirleitt sáningu snemma í maí
svo sáning nú er nokkuð seint á
ferðinni. „Hins vegar er þetta til-
raunaverkefni og við getum gert
margar þessara tilrauna þó að við
fáum ekki uppskeru,“ segir Björn
Lárus.
Í niðurstöðu Umhverfisstofnunar
segir að stofnunin telji hverfandi
líkur á því að erfðabreytta bygg-
ið breiðist út í náttúruna. Eins eru
taldar hverfandi líkur á að víxl-
frjóvgun erfðabreytta byggsins
við annað bygg eða plöntu geti átt
sér stað. Ráðgjafanefnd um erfða-
breyttar lífverur, sem fjallaði um
umsóknina, var ekki einróma, tveir
af níu nefndarmönnum lögðust
gegn því að leyfið yrði veitt. - jse
ORF líftækni hefur fengið skilyrt leyfi til að hefja ræktun utandyra:
Sá fyrir erfðabreyttu byggi
FRÁ KYNNINGARFUNDI UM MÁLIÐ FYRR
Í MÁNUÐINUM Hér er Björn að kynna
fyrirætlanir ORF en nú er leyfið fengið
svo ekkert er að vanbúnaði að fylgja
þeim eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRAKKLAND Nicolas Sarkozy
Frakklandsforseti sagði á mánu-
dag að búrkur íslamskra kvenna
væru ekki velkomnar í Frakk-
landi. Þær væru ekki tákn
um trú, heldur um undirgefni
kvenna. Franska þingið sam-
þykkti í gær að rannsaka áhrif
búrkna og í framhaldinu verður
skoðað hvort lög verði sett til að
banna þær.
Sarkozy sagði að konur í búrk-
um væru fangar á bak við net
og væru útilokaðar frá félagslífi
og sviptar sjálfsmynd. Það væri
ekki hægt að líða í Frakklandi.
Um fimm milljónir múslima
eru í Frakklandi. - þeb
Frakklandsforseti:
Búrkur tákn
um undirgefni
BRETLAND Geisladiskurinn „Lög
fyrir Raísu“ sem inniheldur
söng Mikhaíls Gorbatjov, fyrr-
verandi Sovétleiðtoga, seldist
fyrir 100.000 pund, eða rúmlega
21 milljón íslenskra króna, á
uppboði í London fyrir skömmu.
Þetta kemur fram á vef breska
dagblaðsins Guardian.
Ágóðinn af geisladisknum,
sem inniheldur túlkun
Gorbatsjovs á gömlum ballöðum
frá Rússlandi, rennur til góð-
gerðarsjóðs Raísu, eiginkonu
leiðtogans sem lést fyrir tíu
árum. Sjóðurinn var stofnaður
til að berjast gegn krabbameini
í börnum.
Aðeins eitt eintak var fram-
leitt af geisladisknum. Kaupand-
inn er sagður vera „ónafngreind-
ur breskur mannvinur“. - kg
Sovétleiðtogi syngur ballöður:
Gorbatsjov gef-
ur út geisladisk
ÍRAN, AP Tveir breskir embættis-
menn í Íran voru sendir úr landi í
gær. Það var gert í kjölfar ásakana
um að bresk stjórnvöld hafi skipt
sér með óeðlilegum hætti af kosn-
ingunum í Íran hinn 12. júní síð-
astliðinn. Bresk stjórnvöld svöruðu
með því að senda tvo íranska emb-
ættismenn frá Bretlandi.
Á föstudag gagnrýndi Ali Kham-
enei Íransleiðtogi Vesturlönd og
sagði bresku ríkisstjórnina vera þá
verstu. Á mánudag tilkynntu bresk
stjórnvöld að þau hefðu kallað fjöl-
skyldur embættismanna í Íran heim
til Bretlands í öryggisskyni. Í gær
greindi svo íranska utanríkisráðu-
neytið frá því að tveir breskir emb-
ættismenn hefðu verið reknir úr
landi fyrir „óhefðbundna hegðun“.
Barack Obama Bandaríkjaforseti
sagði á blaðamannafundi að Banda-
ríkin og heimurinn allur væru
hneyksluð á framferði íranskra
stjórnvalda og fordæmdi „hótanir,
barsmíðar og fangelsanir síðustu
daga“. Hann segir Bandaríkin viður-
kenna fullveldi Írans og ekki skipta
sér af málefnum landsins.
Engin mótmæli fóru fram í Teh-
eran í gær fyrir utan um 100 manna
hóp sem mótmælti Vesturlöndum
fyrir utan breska sendiráðið, þar
sem fánar Bretlands, Bandaríkj-
anna og Ísraels voru brenndir. Svo
virðist sem lögreglu og sérsveit-
um hafi tekist að brjóta mótmæli
vegna forsetakosninganna á bak
aftur í bili. Að minnsta kosti sautj-
án hafa látið lífið í mótmælunum og
á mánudag birtust myndskeið á net-
inu af dauða ungrar konu sem hafði
orðið fyrir skoti. Konan hét Neda
Agha Soltan og hefur orðið nokkurs
konar tákngervingur mótmælanna.
Bandaríkjaforseti tjáði sig einnig
um dauða hennar og sagði mynd-
bandið átakanlegt. Þá sagði hann
að þeirra sem berðust fyrir réttlæti
yrði alltaf minnst í sögunni.
Æðsti klerkurinn Khamenei féllst
í gær á að framlengja kvörtunar-
frest vegna kosninganna um fimm
daga. Íranska klerkastjórnin virðist
þó enn vera ákveðin í að hunsa kröf-
ur um að kosið verði á nýjan leik.
thorunn@frettabladid.is
Breskir embættis-
menn reknir frá Íran
Írönsk stjórnvöld ráku í gær tvo breska embættismenn úr landinu. Bretar svör-
uðu í sömu mynt. Barack Obama Bandaríkjaforseti fordæmdi aðgerðir íranskra
stjórnvalda gagnvart mótmælendum og sagði heiminn hneykslaðan á þeim.
MÓTMÆLI Í Íran hefur ekki verið mótmælt síðustu tvo daga en annars staðar í heiminum
er áfram mótmælt. Þessi íranski maður mótmælti í Grikklandi í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Ertu sátt(ur) við 12,5 krónu
bensínverðshækkun?
Já 7,7%
Nei 92,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Finnst þér að leggja eigi
niður Varnarmálastofnun í
sparnaðar skyni?
Segðu þína skoðun á vísir.is
Kærður úrskurður stendur
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póst-
mála hefur staðfest ákvörðun PFS um
að meina Mílu ehf. sjálfvirkar verð-
breytingar til samræmis við byggingar-
vísitölu. Míla hafði kært úrskurðinn.
FJARSKIPTAMARKAÐUR
KJÖRKASSINN