Fréttablaðið - 24.06.2009, Síða 10
10 24. júní 2009 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Gjaldeyrisviðskipti álfyrirtækja
Bílahreinsivörur
Þú sparar
4.590.-
TILBOÐ
2.990.-PAKKI 2Verð áður 7.580.-
Alcoa Fjarðaál og Alcan
á Íslandi hafa stundað
viðskipti með krónur
erlendis. Viðskiptin gætu
skilað fyrir tækjunum 1,65
milljörðum króna í hagnað
á ársgrundvelli. Viðskiptin
geta seinkað styrkingu
krónunnar. Um lögleg
viðskipti er að ræða en
Seðlabankastjóri segir hins
vegar að undanþágur séu
ekki ætlaðar til að fyrir-
tæki hagnist á þeim.
Tvö af þremur álfyrirtækjum
hérlendis greindu frá því í við-
tali við Fréttablaðið í gær að þau
hefðu stundað viðskipti með krón-
ur á erlendum markaði. Slík við-
skipti geta haldið aftur af styrk-
ingu krónunnar en eru ábatasöm
fyrir þau fyrirtæki sem eiga hlut
að máli.
Auðvelt er að setja upp dæmi
sem skýrir vel ágóðann af þessum
viðskiptum. Meðalgengi íslensku
krónunnar samkvæmt meðalgengi
Seðlabanka Íslands hefur verið
um 165 krónur fyrir hverja evru.
Gengi íslensku krónunnar hefur í
miðlunarkerfi Reuters hins vegar
verið um 230 krónur að meðaltali
frá því að bankahrunið skall á í
október. Gengi krónunnar á þeim
markaði gefur vísbendingu um
það gengi sem fyrirtæki geta átt
viðskipti á með krónur erlendis.
Tveir aðskildir markaðir
Ef fyrirtæki ákveður að selja
eina evru á erlendum markaði
hefur það fengið um 230 krónur
að meðaltali í vetur. Hins vegar
ef viðkomandi hefði selt eina evru
hérlendis þá hefur það fengið um
165 krónur að meðaltali frá því
að bankahrunið átti sér stað. Við-
komandi hafa því verið að fá um
65 fleiri krónur fyrir hverja evru
heldur en ef viðskiptin hefðu átt
sér stað hérlendis.
Því er augljóst að það er ágóði
af því fyrir íslensk fyrirtæki að
kaupa krónur á erlendum mark-
aði fyrir þann erlenda gjald-
eyri sem fyrirtækin fá af sínum
útflutningi. Þau fá því fleiri krón-
ur fyrir sama magn af erlendum
gjaldeyri. Með þessum hætti geta
fyrirtækin flutt inn krónur sem
þau kaupa á hagstæðara gengi
til að greiða innlendan kostnað,
svo sem laun og annan tilfallandi
kostnað.
Þar sem viðskiptin fara fram
erlendis hafa þau ekki áhrif á
opinbert gengi krónunnar hjá
Seðlabanka Íslands. Ef viðskipt-
in færu hins vegar fram hérlend-
is, en ekki á erlendum markaði,
myndi það hafa áhrif til styrking-
ar á opinberu gengi krónunnar.
Álfyrirtækin stunda
viðskipti með krónur erlendis
Í forsíðufrétt Fréttablaðsins í gær
kom fram að bæði Alcan á Íslandi
og Alcoa Fjarðaál hafa stundað
viðskipti með krónur á erlendum
mörkuðum. Erna Indriðadóttir
framkvæmdastjóri hjá Alcoa
Fjarðaáli greindi frá því að fyrir-
tækið hefði varið lágu hlutfalli
tekna sinna til kaupa á íslenskum
krónum erlendis. Ólafur Teitur
Guðnason, framkvæmdastjóri
samskiptasviðs Alcan á Íslandi,
sagði jafnframt frá því að félagið
hefði stundað viðskipti með krón-
ur erlendis og notað þær krónur
sem keyptar hefðu verið erlendis
til að greiða minnihlutann af inn-
lendum kostnaði félagsins.
Í því samhengi er athyglisvert
að skoða hve hár innlendur kostn-
aður þessara félaga var á síðasta
ári. Ólafur Teitur greindi frá því
í vetur að Alcan hefði árið 2008
greitt um 6,8 milljarða króna í inn-
lendan kostnað og tekjuskatt, fyrir
utan orkukaup. Ekki hafa feng-
ist upplýsingar um launakostnað
Alcan á Íslandi. Sambærileg tala
fyrir Alcoa Fjarðaál er 9,5 millj-
arðar króna en auk þess greiddi
fyrirtækið 4,4 milljarða í launa-
kostnað á síðasta ári. Því er ljóst
að samanlagður innlendur kostn-
aður þessara tveggja ál fyrirtækja
var að minnsta kosti tuttugu millj-
arðar króna árið 2008.
Athuga ber að orkukostnaður er
ekki innifalinn í þessari tölu þar
sem samningar fyrirtækjanna
eru gjarnan í erlendum gjald-
miðli og því munu fyrirtækin
ekki skipta gjaldeyri til að greiða
þann kostnað.
Lögleg viðskipti
Ljóst er að álfyrirtækin eru dæmi
um fyrirtæki sem hafa notið góðs
af ósamræmi í gengisskráningu
íslensku krónunnar hérlendis
og á erlendum mörkuðum. Eftir
umfjöllun Fréttablaðsins að
undan förnu brást Alcan á Íslandi
við og hafði samband við Seðla-
banka Íslands, sem leiddi til þess
að bankinn óskaði eftir því að öll
þeirra gjaldeyrisviðskipti færu
fram hérlendis. Alcan á Íslandi
hyggst verða við þeirri ósk.
Mikilvægt er að taka fram að
ekki er um lögbrot að ræða hjá
álfyrirtækjunum þar sem þau
hafa undanþágu frá gjaldeyris-
höftunum sem sett voru á fyrr
í vetur. Svein Harald Öygard
Seðlabankastjóri sagði í viðtali
við Fréttablaðið í gær að mörg
fyrirtæki hefðu undanþágur frá
gjaldeyrishöftunum, „hins vegar
eru undanþágur ekki ætlaðar
til að fyrirtækin hagnist vegna
reglnanna.“
Milljarða gróði álfyrir-
tækja af gjaldeyrisbraski
FRAMLEIÐSLA Á ÁLI Alcoa Fjarðaál rekur álverið á Reyðarfirði en Alcan á Íslandi starfrækir álverið í Straumsvík.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ef við gefum okkur að álfyrirtækin
greiði um þrjátíu prósent af inn-
lendum kostnaði, um sex milljarða
króna, með krónum sem keyptar
eru erlendis má reikna út hve mikið
félögin hagnast á að eiga viðskipti
með krónur erlendis.
Samanlagður innlendur kostnaður
álfyrirtækjanna tveggja var um
tuttugu milljarðar króna á síðasta
ári. Ef þau greiða þrjátíu prósent af
þeim kostnaði með krónum sem
keyptar eru erlendis þá þá þurfa
þau að festa kaup á sex milljörðum
króna á erlendum markaði. Til þess
að festa kaup á þessum gjaldeyri
þurfa fyrirtækin að reiða fram 26
milljónir evra á erlendum markaði
samanborið við 36 milljónir evra ef
sömu viðskipti hefðu átt sér stað
hérlendis. Ágóðinn af því að stunda
þessi viðskipti erlendis gæti því
numið tíu milljónum evra á ári eða
um 1,65 milljörðum króna miðað
við meðalgengi íslensku krónunnar
í vetur.
DÆMI UM GJALDEYRISVIÐSKIPTI
ÁLFYRIRTÆKJANNA
FRÉTTASKÝRING
BJÖRN ÞÓR ARNARSON
bta@frettabladid.is
Skógræktarfélag Íslands hefur
ráðist í það verkefni að skapa störf
fyrir allt að 1.000 manns í tengslum
við uppgræðslu á grænum svæð-
um skógræktarfélaga landsins. Til
dæmis með grisjun skógræktar-
svæða og lagningu göngustíga.
Verkefnið er í samstarfi við
Vinnumálastofnun. Ríkissjóður
útvegar efni og aðföng sem þarf
fyrir verkefnin, Skógræktarfélagið
útvegar verkefnin og sveitar félögin
útvega starfsmennina.
„Markmiðið er að ráðast í fram-
kvæmdir við uppbyggingu á
aðstöðu til útivistar og þar með
auðvelda fólki aðgang að óspilltri
náttúrunni,“ segir Magnús Gunnars-
son, formaður Skógræktarfélags
Íslands. Skógræktarfélagið hefur
mótað stefnu til næstu þriggja ára
sem miðar að því að ráðast í mann-
aflsfrek verkefni.
Langstærsta verkefnið er Græni
stígurinn en í því verkefni felst
lagning á þriggja metra breiðum
stíg sem nær um 50 kílómetra leið,
allt frá Kaldárseli í Hafnarfirði
yfir í Esjuhlíðar.
„Það myndi þýða að fólk gæti
hjólað á milli bæjarfélaga,“ segir
Linda Björk Waage, verkefnastjóri
Skógræktarfélags Íslands.
Þegar hefur verið samþykkt af
öllum sveitarfélögum höfuðborgar-
svæðisins nema Reykjavík að taka
þátt í verkefninu. Reykjavík er hins
vegar áhugasöm, að sögn Lindu.
Byrjað er að stika fyrir stígnum í
Garðabæ og Hafnarfirði og Kópa-
vogsbær er búinn með fyrsta áfang-
ann. - vsp
Skógræktarfélag Ísland grisjar og leggur göngustíga:
Skapar þúsund störf á
grænum svæðum