Fréttablaðið - 24.06.2009, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 24. júní 2009 3
„Bankahrunið hefur ekki hindrað
ungt fólk. Mér finnst fleiri sækja
út núna en fyrir ári þegar við byrj-
uðum með verkefnið,“ segir Krist-
rún Sveinsdóttir, verkefnastjóri
hjá Nínukoti. Þessari fullyrðingu
er Þórarinn Ívarsson, formað-
ur Veraldarvina sammála. „Við
finnum líka fyrir aukningu frá
því fyrir ári.“
Nínukot býður sjálfboðaliða-
störf víða um heim auk svokall-
aðra work&travel-verkefna og au
pair-staða en Veraldarvinir bjóða
upp á fjölbreytt verkefni um heim-
inn.
Sabine Leskopf, framkvæmda-
stjóri Alþjóðlegra ungmenna-
skipta, AUS, sem býður fjölbreyti-
leg sjálfboðaliðastörf, og Kristrún
eru þó sammála um að eftirspurn
eftir ferðum hafi aðeins minnk-
að þegar bankakreppan skall á í
haust. „Það var orkuleysi í fólki
og í nokkra mánuði var lítill
áhugi. Eftir áramótin hefur eftir-
spurnin aukist rosalega þannig að
ferðirnar eru orðnar jafn vinsælar
og fyrir ári,“ útskýrir Sabine.
Sabine segir að líkleg ástæða
fyrir vinsældunum sé atvinnu-
ástandið á Íslandi. „Atvinnumark-
aðurinn hefur hingað til verið
þannig að fólk fékk starf næstum
sama hvað það hafði fram að færa.
Nú gæti þróunin verið sú að sýna
þarf fram á hvað fólk hefur gert
umfram skyldunám og því nýtist
þetta á ferilskránni.“
Hvaða staðir eru vinsælastir?
Sabine segir það vera Afríku og
Suður-Ameríku. „Hjá Nínukoti eru
vinsælustu verkefnin í Bandaríkj-
unum, Ástralíu og á Spáni,“ upp-
lýsir Kristrún og Þórarinn tekur
við og segir að Kórea hafi komið
sterk inn ásamt Evrópulöndum.
Aðspurð segja Þórarinn, Sabine
og Kristrún algengt að fólk ferð-
ist eftir að verkefnunum ljúki.
„Margir nýta tækifærið og skoða
landið annað hvort áður en verk-
efnin hefjast eða eftir að þeim
lýkur,“ segir Kristrún og Þórar-
inn samsinnir því. „Fólk vinnur
verkefnin og í framhaldinu fara
langflestir í ferðalög á eigin
vegum.“ Sabine grípur orðið og
segir: „Fyrst fólkið er hvort sem
er komið á staðinn þá nýtir það sér
mjög oft nokkrar vikur í viðbót til
að ferðast.“ martaf@frettabladid.is
Mikið hefur verið rætt um það undanfarna mánuði að Íslendingar
ferðist innanlands í sumar frekar en að fara til útlanda. Ungt fólk
virðist þó ekki láta þá umræðu hafa áhrif á ferðaplön sín.
Ungt fólk ferðast enn til útlanda
Þórarinn segir að verkefnin vari frá
tveimur vikum upp í þrjá mánuði.
Sabine upplýsir að styttri ferðir, frá tveimur upp í fjóra mánuði, séu vinsælar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kristrún segir marga fara í lengri ferðir,
allt upp undir ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
AKSTURSÍÞRÓTTAKLÚBBURINN START heldur
á laugardaginn þriðju umferð Íslandsmótsins í torfæru og fer
keppnin fram á Egilsstöðum. Keppnin hefst klukkan 13 og eru
áætluð keppnislok klukkan 17. Sjá www.ba.is.
LAGERSALA
OPIÐ HÚS
Tupperware á Íslandi í 20 ár!
Af því tilefni verður lagersala í Háholti 23, Mosfellsbæ
dagana 24. og 25. júní kl. 13:00-19:00
Góð tilboð - Mikið úrval af útileguvörum !
Upplýsingar um Tupperware sölustarfi ð
Allir velkomnir!
Mirella ehf - Tupperware umboðið á Íslandi
Háholt 23, 270 Mosfellsbær
sími: 586 8050 fax: 586 8051 netfang: mirella@simnet.is
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
VERSLUN / VERKSTÆÐI
Helluhrauni 4 220 Hafnarfjörður
Sími 555 4900
Allar nánari upplýsingar um þjónustu og vörur á www.rotor.is. lang - stærsti húsbílavefurinn
Viðgerðir Kæliskápar Reiðhjólagrindur Ferðasalerni Fortjöld
Húsbílaþjónusta og fylgihlutir í ferðalagið
Allt í húsbílinn...
...í settum fyrir handlagna
Rótor ehf býður upp á viðgerðaþjónustu
á rafbúnaði húsbíla og vagna ásamt
uppsetningu og tengingu á þeim búnaði
sem við seljum á einu besta
þjónustuverkstæði landsins.
Gasmiðstöðvar
1900 - 2800W
Vatnshitarar
13L gas / 220V
Sólarsellusett í úrvali.