Fréttablaðið - 24.06.2009, Page 26
24. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● ísland er land mitt
Sumum finnst þeir ekki hafa farið
norður nema hafa stungið sér í
jarðbað.
Fyrir norðan er úr nokkrum slík-
um að velja. Þekktustu náttúrulegu
heilsulindirnar eru væntan lega
Grjótagjá í Mývatnssveit og Grettis-
laug á Reykjaströnd í Skagafirði.
Svo má nefna Hveravelli við Kjal-
veg og Laugarfell á Sprengisandi.
Þó er varað við að baða sig í
Grjótagjá núna þar sem vatnið
getur verið misheitt.
Jarðböðin í Mývatnssveit hafa
slegið í gegn síðustu árin, ekki
síst eftir að baðaðstaða var opnuð
í Jarðbaðshólum. Lónið er klórlaust
og engin önnur sótthreinsandi efni
í vatninu enda þarf þess ekki vegna
náttúrulegs efnainnihalds vatnsins.
- jma
Húni II skríður meðfram ströndum Eyjafjarðar. MYND/ÞORGEIR BALDURSSON
Sigling á eikarskipinu Húna II
á lognværu föstudagskvöldi
um innanverðan Eyjafjörð með
sögufróðum leiðsögumanni er
eitt af því sem ferðamönnum
stendur til boða í sumar.
„Þrátt fyrir rigningu komust
færri að en vildu í tvær ferðir
sem við fórum 17. júní. Nú er
mikil ásókn í allt sem kostar lítið
og er við bæjardyrnar,“ segir Þor-
steinn Pétursson, betur þekktur
undir nafninu Steini Pé. Hann er
formaður hollvinasamtaka Húna
II sem reka bátinn en Húni II er í
eigu Iðnaðarsafnsins á Akureyri.
Steini segir kvöldsiglingarnar
meðfram ströndinni hefjast hinn
26. þessa mánaðar. Þá er farið frá
Torfunefi klukkan 20 og tekur
ferðin um einn og hálfan tíma.
Þátttakendur fá kort af svæðinu
og söguna beint í æð úr munni
leiðsögumanns. „Í þessar ferðir
ætlum við að gefa 100 miða til at-
vinnulausra,“ upplýsir Steini og
er beðinn að útskýra þetta nánar.
„Við þiggjum styrk frá hinu opin-
bera vegna viðhalds bátsins.
Hann er af tegund í útrýmingar-
hættu og því er verið að bjarga
verð mætum. En okkur finnst við
hæfi að þakka fyrir okkur og þess
vegna fær Vinnumálastofnun 100
miða sem verða afhentir þar í
fyrstu viku júlímánaðar.“
Húni II var smíðaður á Akur-
eyri árið 1963 og er eini eikar-
báturinn yfir 100 tonnum sem
enn er á floti en þeir voru ellefu á
tímabili. Hann tekur 100 farþega
en til að vel fari um alla segir
Þorsteinn sjötíu manns vera há-
marksfjölda í ferð.
Þorsteinn getur líka sérstak-
lega Hjalteyrarferða sem farnar
verða í sumar á vegum hollvina-
samtakanna, fyrst fimmtudaginn
2. júlí klukkan 16.30. „Hjalteyri
er mikill sögustaður því um tíma
var þar stærsta síldarbræðsla í
Evrópu og fólk mun fá leiðsögn
um eyrina. Svo verður rútuferð
til baka og meðal annars komið
við á Skipalóni og Möðruvöllum.
Einnig verður komið við á Kaffi
Lísu sem býður upp á veitingar
gegn vægu gjaldi,“ lýsir hann
og tekur fram í lokin að hægt sé
að taka skipið á leigu ef áhugi sé
fyrir hendi. - gun
Sögusiglingar um innan-
verðan Eyjafjörð í sumar
Jarðböðin í Mývatnssveit njóta mikilla vinsælda ferðamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Jarðböð norðanlands
Hjalteyri er vinalegur staður og ríkur af sögu. FRÉTTABLAÐIÐ/VERA
Saga Vestmannaeyja er merk, bæði að fornu og nýju, og meðal
þess sem vert er að skoða í Eyjum er uppgröftur sem hafinn er
efst í bænum í hlíðum Eldfells. Þar grillir í einstaka hús sem fór
undir ösku í Heimaeyjargosinu 1973. Meðfram stíg sem gerður
hefur verið í öskunni og lagður gúmmíhellum og gegnsæjum dúk
eru skilti með nöfnum og sögu allmargra húsa sem áformað er að
grafa undan gjallinu. Nöfn íbúanna eru þar einnig.
Verkefnið nefnist Pompei norðursins og enda þótt það sé
skammt á veg komið hrærir það ótvírætt við þeim sem þangað
koma og afleiðingar hinna ógnvekjandi eldsumbrota verða
áþreifanlegar. - gun
Grafin undan gjalli
Húsið við Gerðisbraut 10 var byggt 1971 og var því nánast nýtt þegar það
varð öskunni að bráð. FRÉTTABLAÐIÐ/GUN.
Veljum
Ísland