Fréttablaðið - 24.06.2009, Síða 28

Fréttablaðið - 24.06.2009, Síða 28
 24. JÚNÍ 2009 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● ísland er land mitt Um þessar mundir rýna ýmsir meira í krónuna en áður og þá er tilvalið að nýta sér ódýra gistimöguleika til að spara sér skildinginn. Margir þeirra bjóða líka upp á nýja upplifun sem kryddað getur ferðalagið. Gistimöguleikar á Íslandi eru af margvíslegum toga en þegar kemur að ódýrri eða jafnvel ókeyp- is gistingu þrengist hringurinn. Þó eru til staðar slíkar leiðir sem Ís- lendingar hafa fram að þessu síður nýtt sér í eigin landi þó svo að þeir hafi jafnvel skundað til útlanda og upplifað álíka ævintýri þar. Ævin- týraeyjan Ísland hefur upp á ýmis- legt að bjóða og því er ekki fjarri lagi að líta sér nær, enda margt í gerjun. SJÁLFBOÐALIÐAR Á VALLANESI Býlið Vallanes er á Fljótsdalshér- aði í Vallahreppi hinum forna. Það er í um fimmtán kílómetra fjarlægð frá Egilsstöðum, miðja vegu milli Hallormsstaðar og Egilsstaða. Eymundur Magnús- son stundar þar lífrænan búskap og framleiðir vörur undir merk- inu Móðir jörð, en það sem færri vita er að hjá honum starfar hópur sjálfboðaliða. „Ég hef fengið sjálfboðaliða til mín í gegnum WWOOF-sam- tökin en skammstöfunin stendur fyrir World Wide Opportunities on Organic Farms. Þetta eru alþjóð- leg samtök þar sem fólk vinnur sjálfboðavinnu á lífrænum býlum en fær í staðinn fæði og húsnæði,“ útskýrir Eymundur en í framtíð- inni hefur hann hug á að koma upp ferðaþjónustu. „Ég hef nú þegar reist búðir þar sem hafa mætti lít- inn hótelgang. Þá væri gaman að tengja það búskapnum þannig að fólk fengi að koma aðeins við mold- ina. Fjarlægðin milli sveitar og borgar er orðin svo mikil að stund- um fæ ég undarlegustu spurn- ingar,“ segir hann og nefnir sem dæmi að spurt sé um nýjar gul- rætur um hávetur og kartöflur á sumrin. „Árstíðirnar virðast ekki vera til og maður bara gapir yfir þessum spurningum,“ segir hann og hlær. „WWOOF virkar þannig að sjálfboðaliðarnir greiða árgjald í WWOOF og býlin líka. Þá er út- búinn listi með gestgjöfum og svo er það á milli mín og þeirra sem vilja koma til mín að semja um afganginn. Samtökin eru í raun bara regnhlíf sem heldur utan um þetta,“ útskýrir Eymundur og bætir við að tölvuskeytum rigni inn. „Enn sem komið er hafa engir Íslendingar komið til mín þó svo samtökin séu þekkt á Íslandi og einhverjir Íslendingar hafi farið til útlanda. Ég veit ekki hvort Ís- lendingar eru eins viljugir til að vinna sjálfboðavinnu og aðrar þjóðir en kannski á það eftir að breytast. Margir sem til mín koma eru kannski nýútskrifaðir úr skóla og á krossgötum, langar að skoða heiminn og öðlast nýja reynslu.“ Enn sem komið er tekur Ey- mundur helst ekki inn fólk sem ætlar að vera skemur en viku þar sem það borgar sig ekki. „Ég er hrifnastur af þeim sem vilja vera lengi og eru sumir alveg upp í þrjá mánuði, eða eins lengi og ferða- mannapassinn er í gildi,“ segir hann en viðurkennir að sjálfboða- liðarnir séu misgóðir starfskraftar. „Það er nú allur gangur á því. Sumir hafa reynslu og eru fljót- ir að koma til en aðrir hafa aldrei dýft hendi í kalt vatn. En þar sem samtökin kenna sig við lífræna ræktun þá er það ákveðin sía og ég er að fá hæfara fólk en ella. Þá er þetta oft fólk sem er meðvitað um umhverfi sitt og hefur kynnt sér þessa hluti.“ Hægt er að fræð- ast nánar um Vallanes á vefsíðunni www.vallanes.net. SIGLT Á MILLI SÓFA Á vefsíðunni www.couchsurf- ing.org má finna samtök er flétta saman einstaklinga sem bjóða upp á fría gistingu á heimilissófanum eða í öðrum vistarverum í skipt- um fyrir sams konar þjónustu víðs vegar um heim. „Þetta virkar einfaldlega þannig að þú skráir þig á vefsíðunni og getur valið um hvort þú styrkir samtökin með smá framlagi eða ekki. Peningur- inn er notaður til að byggja upp samtökin og þeir sem greiða þetta gjald fá sig staðfesta, sem þýðir að persónuupplýsingar þeirra eru réttar og öruggar. Gestirnir geta síðan vitnað um sína gestgjafa á vefsíðunni og öfugt. Þannig bygg- irðu upp góðan prófíl með góðum vitnisburði og sýnir fram á hversu góður gestur og gestgjafi þú ert,“ segir Rútur S. Sigurjónsson, nemi í Kvikmyndaskóla Íslands og sófa- sjóari, en hann hefur verið skráð- ur í samtökin í tvö ár. „Fólk sem er bara að leita sér að ódýrri gistingu ætti samt ekki endilega að vera í þessu þar sem þetta gengur líka út á að kynnast nýju fólki og öðruvísi upplifanir. Nú síðast gisti ég í London og fengu ég og kærastan mín mjög fínt herbergi með tvíbreiðu rúmi hjá 35 ára gömlum endurskoðanda sem var fyrirtaks gestgjafi en hún fór á Sólstöðuhátíð í Stone henge og eftirlét okkur íbúðina á meðan,“ segir Rútur og bætir við að yfir- leitt gangi sófaskiptin vel fyrir sig og séu nokkuð örugg. „Á þess- um tveimur árum sem ég hef verið skráður hef ég einungis heyrt af einu atviki einhvers staðar í Bandaríkjunum þar sem gestgjaf- inn var nokkuð viss um að gestur- inn hefði stolið frá sér. Þá var mynd af þeim gesti dreift til allra meðlima og sett á vefsíðuna með upplýsingum. Þar með var við- Ferðast ódýrt og öðruvísi Í snertingu við moldina. Læra má margt af sveitastörfunum á Vallanesi. Oft er glatt á hjalla hjá sjálfboðaliðunum á Vallanesi enda útiveran hressandi og svo sannarlega hægt að komast í beina snertingu við náttúruna en þar fer fram lífræn ræktun. Þar sem WWOOF-samtökin kenna sig við lífræna ræktun eru sjálfboðaliðarnir yfirleitt með áhuga og einhverja þekkingu á umhverfisvernd. MYND/VALLANES Rútur, sem situr hér fyrir miðju, segir Couch Surfing ekki henta þeim sem vilja bara ódýra gistingu heldur þeim sem vilja líka kynnast fólki og upplifa nýja hluti. FR ÉT TA BL A Ð IÐ /A RN ÞÓ R

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.