Fréttablaðið - 24.06.2009, Qupperneq 29
7ísland er land mitt ● fréttablaðið ●
komandi rekinn úr samtökunum og
séð til þess að hann gæti ekki nýtt
sér þjónustuna.“ Rútur telur ekk-
ert því til fyrirstöðu að Íslending-
ar í samtökunum nýti sér þjónustu
annarra meðlima hér á landi. „Svo
lengi sem þú ert skráður í sam-
tökin þá geturðu sótt um gistingu
hvar sem er. Þú einfaldlega send-
ir fyrirspurn til gestgjafans, sem
ákveður síðan hvort hann hýsir
þig eða ekki. Ég hef sjálfur tekið á
móti hátt í fjörutíu manns á þess-
um tveimur árum sem ég hef verið
í þessu og hefur það bara gengið
mjög vel. Síðan eru oft skipulagðar
samkomur af svokölluðum Couch
Surfing sendiherrum og fór ég til
dæmis í svoleiðis grillveislu hér á
landi en þar hittust íslenskir gest-
gjafar og gestir þeirra víða að.
Þetta er í raun samfélag sem nær
yfir um milljón manns,“ segir hann
ánægður.
HÚSASKIPTI
Vefsíðan www.husaskipti.is gerir
fólki kleift að ferðast um Ísland án
þess að greiða fyrir hótel eða aðra
gistingu. Boðið er upp á íbúða- og
sumarhúsaskipti innanlands til
lengri eða skemmri tíma. Notend-
ur síðunnar skrá inn helstu upp-
lýsingar um það húsnæði sem þeir
hafa upp á að bjóða, staðsetningu
og þess háttar, en færa einnig inn
upplýsingar um hvers konar hús-
næði þeir eru að leita að. Í fram-
haldinu geta notendur síðunnar
haft bein samskipti sín á milli
og miðlað þannig upplýsingum.
Margs konar gisting er í boði víða
um land og jafnvel erlendis en nán-
ari upplýsingar er að finna á vef-
síðunni sjálfri og á aðdáendasíðu
á Facebook.
LEIGUMIÐLUN SUMARBÚSTAÐA
Á vefsíðunni www.sumarbustadur.
is er bæði bústaðasala og leigu-
miðlun sumarbústaða. Að vísu er
afstætt hversu ódýr sú gisting telst
en fer það eftir fjölda þeirra sem
gista. Ef margir taka sig saman
og skipta leigunni á milli sín er
hægt að draga verulega úr kostn-
aði. Þegar panta á bústað er haft
beint samband við eigendur bú-
staða eða umboðsaðila þeirra
og getur þessi möguleiki hent-
að þeim sem ekki eiga þess kost
að leigja sumarbústað í gegnum
stéttar félag eða önnur samtök sem
oft bjóða upp á hagstæða sumar-
bústaðaleigu. Hægt er að skoða
hvern bústað fyrir sig á vefsíðunni
en þar eru nánari upplýsingar um
stærð, verð, pöntunarnúmer og að-
stöðu sem hver og einn býður upp
á. Þeir sem eiga sumarbústað og
vilja leigja hann geta einfaldlega
skráð sig á vefsíðunni og þá geta
leigjendur haft samband. Greitt er
fyrir skráningu mánuð í senn en
verð er 6.000 krónur á mánuði auk
virðisaukaskatts. - hs
Eymundur snæðir hér með starfsfólki en sjálfboðaliðar fá frítt fæði og húsnæði.
Á vefsíðunni husaskipti.is er boðið upp á íbúða- og sumarhúsaskipti en á sumar-
bustadur.is fer meðal annars fram leigumiðlun sumarbústaða. MYND/TRÉSMIÐJA HEIMIS
Gróskan er mikil á Vallanesi þar sem ræktað er bygg og lífrænt grænmeti.
H e r n á m s d a g u r i n n
1 . j ú l í 1 9 4 0
Í sögu Reyðarfjarðar segir um hernámið: “Þrátt fyrir þessa atburði óraði Reyðfirðinga
örugglega ekki fyrir því, að í heimabyggð þeirra risi herstöð með mörgum sinnum fleiri her-
mönnum en íbúarnir voru þá, en annað kom á daginn. Hinn 1. júlí 1940 sigldi 26 þúsund
tonna herflutningaskipið Andes inn á Reyðarfjörð og setti þar á land fjölmennt herlið senni-
lega hátt í 200 hermenn, en þeim átti eftir að fjölga svo um munaði.” Árið 1940 bjuggu um
300 manns á Búðareyri við Reyðarfjörð en hermennirnir urðu 3.000 þúsund þegar flest var.
Af þ e s s u t i l e f n i v e rð u r
t i l b o ð á ‘Fi s h & Ch i p s ’,
1 . jú l í , h já OLÍS,
Fja rð a h ó t e l o g í
SHELL s k á l a n u m .
Minnumst hernámsins á
Reyðarfirði 1. júlí 1940
Hittumst í Molanum
miðvikudaginn, 1. júlí kl.
17:00
Göngum saman upp í ‘Camp’
Klæðum okkur í stíl við
tilefnið
Frítt inn á Stríðsárasafnið
Sögumenn og óþekkir
hermenn slást með í för
Tónlist og söngur
Minnumst
hernámsins á
Reyðarfirði
Breskir hermenn á Búðareyri á stríðsárunum
Frí tjaldsvæði, áhugaverð söfn og góðar
sundlaugar í Fjarðabyggð—Verið velkomin